Fangelsismálastofnun
Fangelsismálastofnun

Fjármálastjóri Fangelsismálastofnunar

Fangelsismálastofnun leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í starf fjármálastjóra með góða þekkingu á fjármálum og rekstri, sterka greiningarhæfni og reynslu af því að styðja stjórnendur við áætlanagerð, eftirfylgni og ákvarðanatöku.

Fjármálastjóri gegnir lykilhlutverki í rekstri stofnunarinnar og ber ábyrgð á fjármálum og fjármálastýringu hennar í heild, meðal annars rekstrar- og fjárhagsáætlunum, framkvæmda- og fjárfestingaáætlunum, uppgjöri, kostnaðareftirliti og fjárhagsgreiningum.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á og metnað til að leiða þróun og umbætur á sínu starfssviði, meðal annars með nýtingu tækni, gagna og stafrænna lausna til að bæta fjármálastýringu og stjórnendaupplýsingar, einfalda verkferla og styðja við upplýsta ákvarðanatöku.

Fjármálastjóri heyrir undir forstjóra Fangelsismálastofnunar og er hluti af stjórnendateymi stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með fjármálum, bókhaldi, uppgjöri og fjármálastýringu stofnunarinnar.
  • Ábyrgð á gerð og eftirfylgni rekstrar- og fjárhagsáætlana, útkomuspáa og langtímaáætlana.
  • Greining á rekstri, frávikum og kostnaðarþróun og gerð stjórnendaupplýsinga og lykilmælikvarða.
  • Eftirfylgni með fjárheimildum og regluleg upplýsingagjöf til stjórnenda um stöðu og horfur í rekstri.
  • Ráðgjöf til forstjóra og annarra stjórnenda um fjármál, rekstur og nýtingu fjármuna.
  • Umsjón með innra eftirliti, innkaupum og fjárhagslegum skuldbindingum stofnunarinnar.
  • Forysta um þróun fjármálastýringar og verkferla, m.a. með nýtingu gagna, mælaborða og sjálfvirkni.
  • Umsjón með fjárhagslegum skilum og samskiptum við ráðuneyti, Fjársýslu ríkisins og aðra samstarfsaðila.
  • Ábyrgð á launavinnslu, viðverubókhaldi, stofnanasamningum og launasetningu ásamt öðrum verkefnum á sviði fjármála og rekstrar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á sviði fjármála eða rekstrar er kostur.
  • Mjög góð leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði og farsælli stjórnunarreynslu
  • Farsæl reynsla af fjármálastjórnun, áætlanagerð, uppgjöri og rekstrargreiningu.
  • Mjög góð greiningarhæfni og færni í að vinna með fjárhags- og rekstrarupplýsingar og miðla niðurstöðum á skýran og hnitmiðaðan hátt.
  • Góð tækni- og kerfisþekking, mjög góð færni í Excel og reynsla af fjárhags- og áætlanakerfum.
  • Þekking og reynsla af Orra og Akra, sem og Business Central, Power BI, gagnagreiningu og sjálfvirkni, er kostur.
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að veita stjórnendum faglega ráðgjöf.
  • Mjög góð skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
  • Reynsla af opinberum rekstri og þekking á fjármálaumhverfi og stjórnsýslu ríkisins er kostur.
  • Reynsla af breytingastjórnun og umbóta- eða þróunarverkefnum er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og góð enskukunnátta í ræðu og riti.

 

Nánar um starfið og umsóknarferli

Um er að ræða 100% starf á skrifstofu Fangelsismálastofnunar á Laugavegi 166.

Fangelsismálastofnun leggur áherslu á jafnrétti og jöfn tækifæri starfsfólks og eru öll áhugasöm hvött til að sækja um. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður horft til gæða umsóknargagna og þess hvernig umsækjendur uppfylla þær menntunar- og hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsækjendur sem komast áfram í ráðningarferlinu kunna jafnframt að verða beðnir um að leysa verkefni.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af lögum og reglum sem gilda um ráðningar í störf hjá ríkinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veita Erla María Jónsdóttir Tölgyes, sérfræðingur á skrifstofu forstjóra ([email protected]) og Drífa Sigurðardóttir ráðgjafi hjá Attentus ([email protected]).

Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugavegi 166
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar