Arctic Therapeutics ehf.
Arctic Therapeutics ehf.

Fjármálasérfræðingur hjá Arctic Therapeutics

Arctic Therapeutics leitar að öflugum fjármálasérfræðingi til starfa. Við leitum að einstaklingi sem hefur gott vald á tölum, vinnur skipulega og vill taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu alþjóðlegs nýsköpunarfyrirtækis.

Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér umsjón með fjárhagslegum upplýsingum, verkefnabókhaldi, áætlanagerð og eftirfylgni. Mikilvægt er að viðkomandi haldi vel utan um rétta flokkun og skráningu kostnaðar, meðal annars vegna styrktra verkefna þar sem gerðar eru ríkar kröfur um rekjanleika, gögn og fjárhagslegt uppgjör.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur mjög góðan talnaskilning og greiningarhæfni.

  • Er nákvæmur og leggur metnað í rétta og vandaða skráningu.

  • Vinnur skipulega og hefur góða yfirsýn, sér í lagi þegar mörg verkefni eru í gangi.

  • Getur unnið sjálfstætt og fylgt verkefnum eftir til enda.

  • Er lausnamiðaður, sveigjanlegur og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni.

  • Á auðvelt með samstarf og getur miðlað fjárhagsupplýsingum með skýrum hætti.

  • Kann vel við síbreytilegt starfsumhverfi þar sem verkefni og áherslur geta þróast og breyst hratt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð og flokkun bókhaldsgagna, kostnaðar og fjárhagsupplýsinga. 

  • Umsjón með verkefnabókhaldi og kostnaðarskráningu vegna styrktra verkefna. 

  • Tryggja að kostnaður sé rétt skráður á verkefni, kostnaðarstaði og viðeigandi tímabil. 

  • Halda utan um nauðsynleg fylgigögn og tryggja rekjanleika fjárhagsupplýsinga. 

  • Aðstoð við fjárhagsleg uppgjör og skýrslugjöf til styrkveitenda og annarra samstarfsaðila. 

  • Gerð fjárhagsáætlana og kostnaðaráætlana. 

  • Eftirfylgni með áætlunum, greining frávika og miðlun fjárhagsupplýsinga. 

  • Samstarf við stjórnendur og starfsfólk í ýmsum verkefnum. 

  • Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum tengdum fjárhagsbókhaldi. 

  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast fjármálum, rekstri og uppbyggingu fyrirtækisins. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði fjármála, viðskiptafræði, reikningshalds eða sambærileg menntun. 

  • Reynsla af fjármálum, bókhaldi, verkefnabókhaldi eða reikningshaldi er kostur. 

  • Mjög góð færni í Excel og góð almenn kerfis- og tölvukunnátta. 

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli. 

  • Reynsla af áætlanagerð, kostnaðareftirliti eða uppgjöri styrktra verkefna er mikill kostur. 

  • Þekking á reglum og skilyrðum innlendra eða alþjóðlegra rannsóknar- og nýsköpunarstyrkja er kostur. 

  • Kostur ef viðkomandi er búsettur á Norðurlandi (Akureyri) þar sem höfuðstöðvar félagsins eru. 

  • Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af nýsköpunar- og þróunarverkefnum. 

Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegismatur. 
  • Góður starfsandi og líflegt starfsumhverfi.
  • Öflugt starfsmannafélag.
  • Sveigjanlegur vinnutími.
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur4. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 2, 600 Akureyri
Gróska, Kristínargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar