
Kvenréttindafélag Íslands
Kvenréttindafélags Íslands vinnur að kvenréttindum og jafnri stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Félagið leggur áherslu á mannréttindi og vinnur gegn hvers konar mismunun.
Kvenréttindafélag Íslands eru ein elstu félagasamtök Íslands, en það var stofnað árið 1907 af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur til að stuðla að framgangi kvenna í íslensku samfélagi, hvort sem er í stjórnmálum, atvinnulífi, menntun eða menningu. Félagið hefur því staðið vörð um réttindi kvenna í Íslandi í meira en hundrað ár.
Félagið sinnir ýmsum verkefnum svo sem að:
-Skrifa umsagnir um lagafrumvörp og opinberar skýrslur.
-Halda reglulega opna fundi og málþing um jafnréttismál.
-Styðja við yngri grasrótarsamtök sem berjast fyrir jafnrétti kynjanna.
-Halda upp á kvenréttindadaginn 19. júní með því að gefa út tímaritið 19. júní.
-Skipuleggja samráðsfundi með konum til að efla einstök jafnréttismál.
-Halda og skipuleggja kynjaþing á árlega þar sem einstaklingar og félagasamtök sem starfa að jafnréttismálum gefst tækifæri til að ráða ráðum sínum og kynna starf sitt.
-Taka þátt í og skipuleggja kvennafrídaginn og halda utan um vefsvæði kvennafrísins, kvennafri.is.
Félagið er með skrifstofu á 2. hæð á Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14.
Nánari upplýsingar á https://kvenrettindafelag.is/
Facebook https://www.facebook.com/kvenrettindafelag

Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands
Kvenréttindafélag Íslands leitar að öflugri og metnaðarfullri framkvæmdastýru til að leiða daglegt starf félagsins og vinna að framgangi kvenréttinda og jafnréttis á Íslandi.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem framkvæmdastýra ber ábyrgð á rekstri félagsins, að framfylgja stefnu, fjármögnun, verkefnastjórnun, samskiptum við stjórnvöld, fjölmiðla og samstarfsaðila, sem og skipulagningu viðburða og fræðslu. Framkvæmdastýra vinnur náið með stjórn félagsins og fylgir eftir ákvörðunum hennar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og framkvæmd verkefna félagsins.
- Undirbúningur og eftirfylgni stjórnarfunda og aðalfunda.
- Gerð starfs- og fjárhagsáætlana og eftirlit með fjármálum félagsins.
- Umsjón með styrkumsóknum, fjáröflun og samskiptum við styrktaraðila.
- Umsjón með félagaskrá og samskiptum við félagsfólk.
- Skipulagning ráðstefna, funda og annarra viðburða.
- Umsjón með vefsíðu, samfélagsmiðlum og kynningarmálum.
- Samskipti við fjölmiðla, stjórnvöld, félagasamtök og aðra samstarfsaðila.
- Ritun umsagna um lagafrumvörp, stefnumótandi skjöl og jafnréttismál.
- Eftirlit með þróun jafnréttismála og þátttaka í stefnumótun félagsins.
- Umsjón með innlendu og alþjóðlegu samstarfi félagsins.
- Mannauðsmál, ráðningar og umsjón með starfsfólki og sjálfboðaliðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem hefur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynslu af stjórnun, verkefnastjórnun og rekstri.
- Góða þekkingu og brennandi áhuga á jafnréttismálum, mannréttindum og femínisma.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og reynslu af samstarfi við fjölbreyttan hóp hagsmunaaðila.
- Reynslu af fjáröflun, styrkjaumsóknum eða rekstri félagasamtaka.
- Mjög góða færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og getu til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Fríðindi í starfi
Við bjóðum
- Einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun jafnréttismála á Íslandi.
- Fjölbreytt og gefandi starf í öflugum félagasamtökum með langa sögu.
- Náið samstarf við stjórn, félagsfólk og breiðan hóp samstarfsaðila innanlands og erlendis.
- Sveigjanlegt starfsumhverfi.
Auglýsing birt11. nóvember 2026
Umsóknarfrestur25. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Túngata 14, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (5)




