

Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands
Skógræktarfélag Íslands (SÍ) er landssamband skógræktarfélaga um land allt og vinnur að eflingu skógræktar í þágu almennings.
Framkvæmdastjóri SÍ ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, framkvæmd stefnu stjórnar og faglegri forystu í starfsemi tengdri skógrækt, umhverfismálum, útivist og félagastarfi.
SÍ leitar nú að framkvæmdastjóra sem getur stutt félagið í að vera leiðandi afl í mótun, vernd og þróun skóga á Íslandi. Leiðarljós framkvæmdastjóra er að gera SÍ að öflugum málsvara aðildarfélaganna gagnvart stjórnvöldum og í samfélagsumræðunni. Einnig að draga fram samfélagslegt verðmæti skóga og vinna að því að gera skógana aðgengilega almenningi.
Yfirumsjón með daglegum rekstri, fjármálum og starfsmannahaldi félagsins.
· Kynningar- og fræðslustarf um skógrækt og gildi hennar fyrir samfélag og náttúru.
· Samskipti við aðildarfélög, stjórnvöld, styrktar- og samstarfsaðila.
· Framkvæmd ákvarðana og stefnu stjórnar.
· Undirbúningur og eftirfylgni funda stjórnar- og aðalfunda.
· Umsjón með verkefnum tengdum skógrækt.
· Öflun rekstrarfjár, umsjón með samningum og styrkumsóknum.
· Gerð ársskýrslna, fjárhagsáætlana og annarra skýrslna um starfsemina.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
· Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri, gjarnan í félagasamtökum eða opinberum rekstri.
· Áhugi á skógræktarstarfi er skilyrði.
· Leiðtogahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi sjálfboðaliða og fagfólks.
· Færni í verkefnastjórnun.
· Færni í mannlegum samskiptum og samningagerð.
· Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
· Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Launakjör eru samkvæmt samkomulagi milli stjórnar SÍ og umsækjanda.
Enska
Íslenska
