
Ísbúð Huppu
Ísbúð Huppu var stofnuð á Selfossi árið 2013 og hefur síðan vaxið í eina af stærstu ísbúðakeðjum landsins. Í dag eru ísbúðir Huppu 11 talsins víðs vegar um landið og hjá okkur starfa um 200 einstaklingar.
Gildi Huppu eru gleði, gæði og framúrskarandi þjónustu. Við leggjum áherslu á jákvætt og skemmtilegt starfsumhverfi þar sem samvinna, frumkvæði og góður liðsandi skipta máli.
Við erum metnaðarfullt fyrirtæki í stöðugri þróun og viljum að bæði starfsfólk og viðskiptavinir fari frá okkur með bros á vör!

Framkvæmdastjóri Ísbúðar Huppu
Við leitum að einstaklingi með gott auga fyrir rekstri og árangri, sterka greiningarhæfni og framúrskarandi samskiptafærni. Viðkomandi er sjálfstæður, ábyrgur og hefur metnað til að láta hlutina gerast.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri Ísbúðar Huppu
- Ábyrgð á sölu og framlegð
- Áætlanagerð og eftirfylgni með þeim
- Viðhalda samstarfi við viðskiptavini og lykilbirgja
- Ráðningar lykilfólks, fela því ábyrgð, þjálfa það og styðja, fylgja eftir frammistöðu þess og veita endurgjöf á frammistöðu
- Koma auga á ný tækifæri og þróa reksturinn
- Vera leiðandi í því að viðhalda menningu og gildum Ísbúðar Huppu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri
- Háskólagráða á sviði viðskipta
- Reynsla og þekking í gerð, framkvæmd og eftirfylgni sölu-, markaðs- og rekstraráætlana
- Mikil greiningarhæfni, góð dómgreind, rökhugsun, skapandi og lausnamiðuð hugsun
- Góð leiðtoga-, samskipta- og skipulagshæfni
- Reynsla af þjónustu-, verslunar- eða veitingarekstri er kostur
- Góð tölvukunnátta og færni
- Frumkvæði, heiðarleiki, árangursdrifni og öguð vinnubrög
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)




