Stofnun atvinnuveganna
Stofnun atvinnuveganna
Stofnun atvinnuveganna

Samskiptastjóri

Viltu taka þátt í að byggja upp nýja stofnun og móta hvernig hún á í samskiptum við samfélagið?

Stofnun atvinnuveganna (STAV) leitar að öflugum og reynslumiklum samskiptastjóra sem leiðir stefnumótun og uppbyggingu samskiptamála stofnunarinnar. Samskiptastjóri STAV fær einstakt tækifæri til að móta samskipti og ásýnd nýrrar stofnunar frá upphafi og verða lykilráðgjafi forstjóra og stjórnenda hennar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur skýra sýn á mikilvægi góðra samskipta, getur veitt stjórnendum faglega og sjálfstæða ráðgjöf og hefur hæfni til að miðla flóknum málum á einfaldan, skýran og trúverðugan hátt.

Við leitum að fólki sem hefur metnað til að gera hlutina vel, þor til að hugsa á nýjan hátt og vilja til að taka þátt í að skapa framúrskarandi vinnustað.

Samskiptastjóri heyrir beint undir forstjóra og starfar náið með framkvæmdastjórn og öðrum stjórnendum stofnunarinnar. Starfið er bæði stefnumótandi og framkvæmdamiðað og felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni.




Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móta og leiða samskiptastefnu STAV og tryggja samræmda upplýsingamiðlun.
  • Tryggja markviss og samræmd innri og ytri samskipti stofnunarinnar.
  • Vera forstjóra og framkvæmdastjórn til ráðgjafar um samskipti, upplýsingagjöf og orðsporsmál.
  • Leiða fjölmiðlasamskipti og upplýsingamiðlun vegna viðkvæmra eða umdeildra mála.
  • Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við stjórnvöld, atvinnulíf, sveitarfélög og aðra hagaðila.
  • Annast og þróa innri upplýsingamiðlun stofnunarinnar.
  • Þróa og samræma stafræna miðlun, vef, samfélagsmiðla og aðrar samskiptaleiðir.
  • Stuðla að gagnsæi, trausti og góðum skilningi á hlutverki, ákvörðunum og starfsemi STAV.



Hæfni og reynsla

  • Víðtæk reynsla af stefnumótandi samskiptum, upplýsingamiðlun og ráðgjöf við stjórnendur.
  • Góð þekking á fjölmiðlum, samfélagsumræðu og stafrænum samskiptum.
  • Reynsla af samskiptum við stjórnvöld, opinberar stofnanir eða fjölbreytta hagaðila er kostur.
  • Reynsla af samskiptum vegna viðkvæmra eða umdeildra mála er kostur.
  • Framúrskarandi hæfni til að tjá sig á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
  • Hæfni til að greina flókin viðfangsefni og miðla þeim á skýran, aðgengilegan og trúverðugan hátt.
  • Sjálfstæði, frumkvæði, góð dómgreind og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.



Um stofnun atvinnuveganna

Stofnun atvinnuveganna er sjálfstæð eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið. Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga flytjast til stofnunarinnar.

Verkefnasvið stofnunarinnar er fjölbreytt og viðamikið. Stofnunin gegnir stjórnsýslu- og eftirlitshlutverki á grundvelli nýsamþykktra laga ásamt því að framfylgja alþjóðlegum skuldbindingum sem snúa að viðfangsefnum stofnunarinnar. Þá fer stofnunin meðal annars með verkefni á sviði sjávarútvegs, stjórnunarfiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvæla, dýravelferðar og heilbrigðis dýra og plantna. Stofnun atvinnuveganna stuðlar að skilvirku opinberu eftirliti, veitir stjórnvöldum ráðgjöf og miðlar upplýsingumtil hagsmunaaðila og almennings. Markmiðið er að koma á fót öflugri stofnun sem veitir þjónustu í heimabyggð á sviði eftirlits með matvælum og sjálfbærri nýtingu auðlinda, þannig að bæði fagþekking og ákvarðanataka haldist í nærumhverfinu. Hjá Stofnun atvinnuveganna munu starfa um 200 manns.



Hvers vegna STAV?

Hjá STAV gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar ríkisstofnunar og hafa raunveruleg áhrif á þróun hennar.

Markmið okkar er að byggja upp nútímalega, skilvirka og trausta þjónustu- og eftirlitsstofnun þar sem fagmennska, samstarf og góð þjónusta eru í fyrirrúmi.



Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2026.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]).

Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar