Brú Talent ehf.
Brú Talent ehf.

Verk- eða tæknifræðingur í stjórnendastarf

Fyrir hönd viðskiptavinar Brú Talent erum við að leita að verk- eða tæknifræðingi í stjórnendastöðu með reynslu af verkefnastýringu framkvæmdaverka - þar er reynsla af jarðvinnuframkvæmdum mikill kostur. Um er að ræða virkilega fjölbreytt, krefjandi & skemmtilegt starf sem felur í sér að leiða teymi, mikla ábyrgð og vinnu við uppbyggingu á svæðinu.

Ertu tilbúin/nn til að flytja austur og taka næsta skref í þinni vegferð?
Býrðu fyrir austan og langar þig til að takast á við ný verkefni og þróast í starfi?

Skoðaðu þá þetta tækifæri betur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnin snúast að mestu leyti um að:

  • Hafa yfirumsjón með framkvæmdum og fylgja því eftir að framkvæmt sé samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.

  • Halda yfirsýn yfir stöðu verkefna, framvindu þeirra og kostnaði.

  • Undirbúa og gera áætlanir fyrir framkvæmdir sem eru í pípunni.

Hæfnikröfur

  • Verk- eða tæknifræðingur - en til greina kemur önnur menntun eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Reynsla af jarðvinnuframkvæmdum er mikill kostur

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hæfni til að leiða teymi

  • Frumkvæði og faglegur metnaður

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi

  • Góð öryggisvitund

Umsóknarfrestur er til og með 6. desember.

Nánari upplýsingar veitir Bestla Baldursdóttir ([email protected]).

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar