COWI
COWI
COWI

Sérfræðingur í hönnun samgöngumannvirkja

Hefur þú áhuga á fjölbreyttum hönnunarverkefnum á sviði samgangna? Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í hönnun samgöngumannvirkja til að bætast við deild samganga og veitna. Á deildinni starfa 18 einstaklingar sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að hönnun samgöngumannvirkja og veitulagna, framkvæmdareftirliti, mælingar, gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna.

Lykilþættir starfsins eru:

  • Hönnun samgöngumannvirkja s.s. vega, gatna og stíga.
  • Hönnun vinnusvæðamerkinga.
  • Gerð teikninga og magntaka.
  • Samskipti við verkkaupa og aðra hagsmunaaðila.  
Menntunar- og hæfniskröfur

COWI er þekkingarfyrirtæki og byggjum við reksturinn á þekkingu og hæfni fólksins okkar. Til að ná árangri í þessari stöðu leitum við eftir aðila sem kann að greina tækifærin og grípa þau, hefur gaman af því að vinna í skilvirku teymi þvert á deildir og landamæri og er opinn fyrir nýjum áskorunum.

Að auki erum við að leitast eftir:

  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. B.Sc. próf í verk- eða tæknifræði.
  • Reynsla af hönnun samgöngumannvirkja er kostur.
  • Reynsla af notkun hönnunarforrita s.s. Civil 3D og/eða OpenRoads er kostur.
  • Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi.  
  • Góðir samskiptahæfileikar.  
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli. 
Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð
  • Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu  
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkir
  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum deildum og viðburðum
  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi
  • Starfsþróunarmöguleikar innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræn þjálfun hjá COWI Academy
  • Árlegt heilsufarsmat
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Miðvangur 2-4 2R, 700 Egilsstaðir
Bárugata 8-10 8R, 300 Akranes
Eyravegur 29, 800 Selfoss
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar