

Stefnustjóri
Viltu taka þátt í að byggja upp nýja stofnun og móta hvernig hún á í samskiptum við samfélagið?
Stofnun atvinnuveganna (STAV) leitar að öflugum og reynslumiklum stefnustjóra sem leiðir stefnumótun og uppbyggingu samskiptamála stofnunarinnar. Stefnustjóri STAV fær einstakt tækifæri til að móta stefnu og árangursstjórnun nýrrar stofnunar frá upphafi og verða lykilráðgjafi forstjóra og framkvæmdastjórnar við uppbyggingu og þróun starfseminnar.
Við leitum að einstaklingi sem hefur skýra sýn á mikilvægi góðra samskipta, getur veitt stjórnendum faglega og sjálfstæða ráðgjöf og hefur hæfni til að miðla flóknum málum á einfaldan, skýran og trúverðugan hátt.
Við leitum að fólki sem hefur metnað til að gera hlutina vel, þor til að hugsa á nýjan hátt og vilja til að taka þátt í að skapa framúrskarandi vinnustað.
Stefnustjóri heyrir beint undir forstjóra og starfar náið með framkvæmdastjórn og öðrum stjórnendum stofnunarinnar. Starfið er bæði stefnumótandi og framkvæmdamiðað og felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og samræma stefnumótunarvinnu STAV í nánu samstarfi við forstjóra og framkvæmdastjórn.
- Þróa og innleiða árangursstjórnun, markmið og lykilmælikvarða fyrir starfsemi stofnunarinnar.
- Fylgja eftir stefnumarkandi verkefnum og umbótum þvert á stofnunina og styðja stjórnendur við innleiðingu þeirra.
- Safna, greina og miðla stjórnendaupplýsingum með skýrum og aðgengilegum hætti.
- Þróa stjórnendamælaborð, reglulega árangursskýrslugjöf og frávikagreiningar.
- Styðja forstjóra og framkvæmdastjórn við forgangsröðun verkefna, ákvarðanatöku og mat á árangri.
- Stuðla að skilvirkum verkferlum, nýsköpun og stöðugum umbótum í starfsemi stofnunarinnar.
- Tryggja yfirsýn yfir framvindu lykilverkefna og stuðla að samræmdum vinnubrögðum þvert á starfsemina.
Hæfni og reynsla
- Þekking og árangursrík reynsla af stefnumótun, árangursstjórnun eða þróunar- og umbótaverkefnum.
- Þekking á aðferðafræði stefnumótunar, árangursmælinga og stöðugra umbóta.
- Sterk greiningarhæfni og reynsla af vinnslu, túlkun og framsetningu upplýsinga.
- Framúrskarandi hæfni til að setja flókin mál fram á skýran, hnitmiðaðan og aðlaðandi hátt.
- Reynsla af verkefnastjórnun, innleiðingu verkefna og samstarfi við stjórnendur.
- Sjálfstæði, frumkvæði, góð dómgreind og skipulögð vinnubrögð.
- Leiðtogahæfni, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að ná árangri í samstarfi við aðra.
- Þekking á stafrænum lausnum, gagnagreiningu og stjórnendamælaborðum er kostur.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Um stofnun atvinnuveganna
Stofnun atvinnuveganna er sjálfstæð eftirlits- og stjórnsýslustofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið. Stofnun atvinnuveganna verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga flytjast til stofnunarinnar.
Verkefnasvið stofnunarinnar er fjölbreytt og viðamikið. Stofnunin gegnir stjórnsýslu- og eftirlitshlutverki á grundvelli nýsamþykktra laga ásamt því að framfylgja alþjóðlegum skuldbindingum sem snúa að viðfangsefnum stofnunarinnar. Þá fer stofnunin meðal annars með verkefni á sviði sjávarútvegs, stjórnunarfiskveiða, lagareldis, lax- og silungsveiði, fiskræktar, matvæla, dýravelferðar og heilbrigðis dýra og plantna. Stofnun atvinnuveganna stuðlar að skilvirku opinberu eftirliti, veitir stjórnvöldum ráðgjöf og miðlar upplýsingumtil hagsmunaaðila og almennings. Markmiðið er að koma á fót öflugri stofnun sem veitir þjónustu í heimabyggð á sviði eftirlits með matvælum og sjálfbærri nýtingu auðlinda, þannig að bæði fagþekking og ákvarðanataka haldist í nærumhverfinu. Hjá Stofnun atvinnuveganna munu starfa um 200 manns.
Hvers vegna STAV?
Hjá STAV gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar ríkisstofnunar og hafa raunveruleg áhrif á þróun hennar.
Markmið okkar er að byggja upp nútímalega, skilvirka og trausta þjónustu- og eftirlitsstofnun þar sem fagmennska, samstarf og góð þjónusta eru í fyrirrúmi.
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2026.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]).
Íslenska
Enska










