
Verkefnastjóri
Við hjá TILDRA Byggingafélagi leitum að skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að taka þátt í verkefnum hjá okkur sem verkefnastjóri. Starfið felur í sér að hafa umsjón með daglegu skipulagi og framkvæmdum á verkstað, keyra áfram framvindu verka, tryggja að verkefni gangi eftir áætlun og umsjón með undirverktökum.
Við leggjum áherslu á gott samstarf og fagleg vinnubrögð og leitum að aðila sem hefur góða yfirsýn og getur tekið frumkvæði.
Við leitum að einstakling með mikla reynslu af framkvæmdum og stjórnun byggingarverkefna.
Helstu verkefni:
-
Umsjón með daglegum framkvæmdum á verkstað
-
Skipulagning og eftirfylgni á verkáætlunum
-
Samstarf við hönnuði, verktaka, birgja og aðra hagsmunaaðila
-
Eftirlit með öryggismálum og gæðakröfum á vinnusvæði
-
Skil á verkum innan tímamarka og kostnaðarviðmiða
-
Tímaskráning, skýrslugerð og samskipti við stjórnendur
Hæfniskröfur:
-
Menntun í byggingartækni, verkfræði eða sambærilegt
-
Reynsla af framkvæmdum og/eða verkstjórn á byggingarsvæðum
-
Þekking á verkáætlun, kostnaðareftirliti og gæðakerfum
-
Góð samskiptahæfni og leiðtogahæfileikar
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
-
Færni í notkun verkstjórnarkerfa og tölvuforrita (t.d. Excel, AutoCAD, MS Project o.fl.)
Við bjóðum:
-
Krefjandi og fjölbreytt verkefni hjá framsæknu fyrirtæki
-
Tækifæri til vaxtar og þróunar í starfi
-
Samkeppnishæf laun og starfskjör
Íslenska
Enska










