atNorth
atNorth
atNorth

Mechanical Subject Matter Expert

atNorth heldur áfram að stækka í Reykjanesbæ og leitar að öflugum Mechanical Subject Matter Expert (M-SME) til að styrkja tækniteymi fyrirtækisins.

Við leitum að einstaklingi með sterkan tæknilegan bakgrunn og víðtæka þekkingu á véla- og kælikerfum. M-SME gegnir lykilhlutverki í að tryggja öruggan, áreiðanlegan og skilvirkan rekstur vélrænna kerfa gagnaversins. Starfið felur í sér tæknilega sérfræðiábyrgð á öllum stigum, allt frá framkvæmdum og gangsetningu til daglegs reksturs, viðhalds og stöðugra umbóta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tæknileg yfirumsjón með véla-, kæli- og tengdum kerfum gagnaversins með áherslu á rekstraröryggi og skilvirkni
  • Leiða bilanagreiningu, rótargreiningar og úrlausn flókinna tæknilegra vandamála
  • Skipuleggja og hafa umsjón með fyrirbyggjandi og leiðréttandi viðhaldi, viðgerðum og gangsetningu kerfa
  • Veita tæknilega sérfræðiaðstoð við framkvæmdir, breytingar og þróun vélrænna kerfa
  • Tryggja gæði viðhalds, samræmi við öryggisstaðla, verklagsreglur og gæðakröfur
  • Fylgjast með rekstrargögnum og lykilmælikvörðum og leiða umbætur sem auka áreiðanleika og hagkvæmni
  • Þróa og samræma tæknilega verkferla, viðhaldsáætlanir og staðla
  • Miðla þekkingu, leiðbeina samstarfsfólki og styðja við faglega þróun teyma
  • Taka þátt í samstarfi við þjónustuaðila, áætlanagerð og kostnaðareftirliti
  • Taka þátt í bakvöktum samkvæmt fyrirkomulagi hverju sinni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði vélstjórnar, vélfræði, véltækni, vélvirkjunar eða kælitækni, eða sambærileg reynsla
  • Að lágmarki 5 ára reynsla af rekstri og viðhaldi tæknikerfa í gagnaverum eða öðru rekstrarumhverfi þar sem miklar kröfur eru gerðar til rekstraröryggis
  • Sterk tæknileg þekking á véla-, kæli- og loftræstikerfum, ásamt reynslu af viðhaldi, bilanagreiningu og gangsetningu
  • Þekking á öryggis- og gæðastöðlum, breytingastjórnun og vinnu í ISO-vottuðu umhverfi
  • Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til að miðla þekkingu og vinna þvert á teymi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Viðeigandi fag- og öryggisréttindi
  • Hreint sakavottorð og bílpróf
Fríðindi í starfi
  • Viðeigandi þjálfun, símenntun og tækifæri til faglegrar þróunar
  • Heilsumiðað hugarfar með áherslu á jafnvægi milli starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til að rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegt og fjölmenningarlegt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt19. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sjónarhóll 6, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar