VikNordik ehf.
VikNordik ehf.

Viknordik leitar að verkefnastjóra

Vilt þú taka þátt í uppbyggingu öflugs fyrirtækis og bera ábyrgð á fjölbreyttum og spennandi framkvæmdaverkefnum?

Viknordik ehf. leitar að öflugum og sjálfstæðum verkefnastjóra til að leiða verkefni fyrirtækisins frá undirbúningi og tilboðsgerð til verkloka.

Viknordik sérhæfir sig í innflutningi, sölu, suðu og lagningu plaströra ásamt lausnum fyrir veitur, fiskeldi, iðnað og aðra innviðauppbyggingu. Fyrirtækið er staðsett í Grindavík og hjá því starfa um 27 manns.

Við leitum að einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, sterka skipulagshæfni og getur tekið sjálfstæða ábyrgð á framkvæmd, fjárhag og árangri verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heildarumsjón með verkefnum frá tilboðsgerð til verkloka.
  • Gerð kostnaðar-, verk- og tímaáætlana.
  • Fjárhagsleg eftirfylgni, kostnaðareftirlit og uppgjör verkefna.
  • Samskipti og samningagerð við verkkaupa, undirverktaka og birgja.
  • Skipulagning mannafla, efnisöflunar og annarra aðfanga.
  • Eftirlit með framvindu, gæðum og arðsemi verkefna.
  • Þátttaka í þróun verkferla og áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkefnastjórnun og framkvæmdum.
  • Góð þekking á kostnaðaráætlunum og fjárhagslegri stjórnun verkefna.
  • Sterk skipulags-, samskipta- og leiðtogahæfni.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Menntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða iðngreina er kostur.
  • Reynsla af lagnaframkvæmdum, veitum eða sambærilegum verkefnum er kostur.
Auglýsing birt19. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Hafnargata 22, 240 Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar