

Rekstrarstjóri fiskeldis
Nýtt félag á vegum Brim, Húsatóftir ehf, leitar að öflugum og drífandi rekstrarstjóra til að leiða starfsemi félagsins og taka þátt í uppbyggingu þess til framtíðar. Starfsemin byggir á rekstri i landeldisfyrirtækisins Matorku.
Rekstrarstjóri hefur yfirumsjón með starfseminni í Grindavík og Fellsmúla, Landssveit, með megináherslu á starfsstöðina í Grindavík. Við leitum að framsýnum aðila sem hefur áhuga á að skapa traustan rekstrargrundvöll, þróa starfsemina og tryggja skilvirkan og hagkvæman rekstur.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling með reynslu af fiskeldi og stjórnun, en starfið felur í sér fjölbreytta ábyrgð á rekstri, framleiðslu og mannauðsmálum. Áhersla er lögð á virka þátttöku í daglegum rekstri, öflug samskipti við starfsfólk og uppbyggingu jákvæðrar vinnustaðamenningar þar sem fagmennska, samstarf og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.
- Ábyrgð á daglegum rekstri starfsstöðva félagsins í Grindavík og Landssveit
- Stjórnun framleiðslu og daglegra verkefna
- Leiða, styðja og þróa starfsfólk og stuðla að góðri liðsheild og jákvæðri vinnustaðamenningu
- Tryggja skilvirka nýtingu mannafla, fjármuna og búnaðar
- Fylgja eftir rekstraráætlunum, kostnaði og framleiðslumarkmiðum
- Stuðla að umbótum á verklagi, verkferlum og skipulagi starfseminnar
- Tryggja að starfsemin uppfylli kröfur um gæði, öryggi, fiskivelferð og umhverfismál
- Vinna náið með forstjóra, stjórn og öðrum stjórnendum að þróun og uppbyggingu félagsins
- Vera sýnilegur í starfseminni og eiga góð og regluleg samskipti við starfsfólk
- Reynsla af fiskeldi eða tengdri starfsemi er skilyrði
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri og stjórnun, einkum á sviði framleiðslu eða fiskeldis
- Góð rekstrarleg og fjárhagsleg yfirsýn
- Þekking á framleiðsluferlum og tæknilegum þáttum fiskeldis
- Samskipta- og leiðtogahæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Lausnamiðuð nálgun og vilji til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum
- Góð íslensku- og enskukunnátta, norðurlandamál er kostur
Íslenska
Enska










