

Framleiðslustjóri
Í einum grænum er dótturfyrirtæki Sölufélags garðyrkjumanna og var stofnað 2004 með það að leiðarljósi að fullnýta uppskeru grænmetisbænda. Markmiðin eru að koma nýjum vörum á framfæri og bjóða neytendum upp á fullunna vöru unna úr íslensku grænmeti. Með þessu er komið í veg fyrir matarsóum sem fyrirtækinu er einnig hugleikin.
Vörumerkið Ostahúsið hefur verið í eigu ÍEG frá 2006 og fer öll framleiðsla fram í höfuðstöðvum okkar, Brúarvogi 2. Ostahúsið er rótgróið vörumerki upphaflega stofnað í Hafnarfirði árið 1992.
Í einum grænum leitar að öflugum og skipulögðum framleiðslustjóra til að bera ábyrgð á daglegum rekstri og þróun framleiðslu fyrirtækisins. Við framleiðum meðal annars smurosta, rjómaosta og forsoðnar kartöflur auk annarra matvæla. Við leitum að einstaklingi með góða þekkingu á matvælaframleiðslu, innkaupum, birgðum og kostnaðareftirliti. Viðkomandi vinnur náið með starfsfólki og stjórnendum að því að tryggja skilvirkan rekstur, stöðug vörugæði og áreiðanlegar afhendingar.
Við leitum að einstaklingi með reynslu af mjólkur- og ostaframleiðslu og menntun á sviði matvælaframleiðslu, svo sem sem mjólkurfræðingi eða sambærilega menntun og reynslu.
Starfið hentar einstaklingi sem vill nýta fagþekkingu sína í fjölbreyttu starfi þar sem bæði fagleg þekking og góður rekstrarárangur skipta máli.
- Ábyrgð á framleiðslu og pökkun á matvælum
- Ábyrgð á rekstri og innkaupum
- Ábyrgð á verkstjórn og utanumhald um verkefni og starfsfólk í framleiðslu
- Ábyrgð á lagerhaldi hráefna, umbúða og uppskriftum
- Birgðastýring og áætlanagerð til að tryggja nægilegt framboð og lágmarka óþarfa birgðasöfnun
- Kostnaðareftirlit, eftirfylgni með framleiðslukostnaði og vinna að hagkvæmri nýtingu hráefna
- Ábyrgð á gæðum afurða, hreinlæti og matvælaöryggi
- Vöruþróun, þátttaka í þróun og umbótum á vörum og framleiðsluferlum
- Eftirlit með tækjum, búnaði og viðhaldi
- Skráning og eftirfylgni með framleiðslu, birgðum, rýrnun og öðrum lykiltölum.
- Dugnaður og heiðarleiki
- Framúrskarandi hæfni í matargerð
- Leiðtogahæfileikar og góð samskiptahæfni
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi,
- Skipulagsfærni, sjálfstæði og geta til að vinna undir álagi
- Almenn tölvufærni
- Hreint sakarvottorð
- Íslenskumælandi
- Sterk kostnaðarvitund
Íslenska
Enska








