Kópahvoll
Kópahvoll
Kópahvoll

Matráður/Kokkur

Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir að ráða matráð í framtíðar starf.

Kópahvoll er sjö deilda skóli með 134 börnum. Skólinn starfar í tveimur húsnæðum. Ráðningin á við húsnæðið við Skólatröð, þar eru þrjár deildar og um 60 börn. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga.

Leikskólinn Kópahvoll leggur ríka áherslu á að bjóða upp á heilsusamlegt fæði og fylgja faglega viðurkenndum ráðleggingum um næringu barna. Þar sem næringarefnin koma úr mörgum tegundum matvæla er lögð áhersla á fjölbreytni í fæðuvali. Ferskleiki matvæla er tryggður og maturinn eldaður frá grunni. Með fjölbreytni að leiðarljósi er þess sérstaklega gætt að börnin fái öll næringarefni og að maturinn uppfylli dagleg næringarviðmið (NV). Mikilvægt er að hjálpa börnunum að temja sér heilbrigðar matarvenjur til framtíðar. Næringarstefnunni fylgja átta vikna matseðlar sem byggja á opinberum ráðlegginum um næringu barna og unnir hafa verið af næringarfræðingi og lýðheilsufræðing.

  • Hefur umsjón með matreiðslu, bakstri, sérfæði og daglegri starfsemi eldhús ásamt aðstoðarmatráði.
  • Sér um pantanir, innkaup, birgðarvörslu og frágang á vörum sem tilheyra eldhúsi og ræstingu.
  • Sýnir sjálfstæð vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framleiðir holla og næringarríka fæðu fyrir börnin.
  • Framleiðir mat fyrir börn með fæðuofnæmi/óþol.
  • Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs.
  • Mikilvægt er að eiga gott samstarf við börn og aðra starfsmenn leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús, þvottahús sem og kaffistofu sem yfirmaður felur honum.
  • Sér um þrif á eldhúsi samkvæmt Gámes áætlun. 
  • Sér um uppvask í samvinnu við aðstoðarmatráð.
  • Situr starfsmannafundi eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matreiðslumaður. Ef ekki fæst matreiðslumaður verður ráðinn matráður eða starfsmaður með sambærilega menntun.
  • Ábyrgur, stundvís, sveigjanlegur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
  • Þekking á framreiðslu og bakstri.
  • Sjálfstæði, skipulag og metnaður í vinnubrögðum.
  • Hreinlæti og snyrtimennska.
  • Þekking og meðvitund um næringargildi og hollustu matvæla.
  • Þekking á matargerð fyrir börn með bráðaofnæmi og óþol.
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur1. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skólatröð 13
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar