

Deildarstjóri óskast í Kópahvol vegna stækkunar
Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir að ráða deildarstjóra vegna stækkunar
Leikskólinn Kópahvoll starfar í tveimur húsum, við Bjarnhólastíg 26 og við Skólatröð í Kópavogi. Í leikskólanum dvelja 134 börn og eru sjö deildir starfandi við skólann. Yngri börnin dvelja í húsnæði við Bjarnhólastíginn sem stendur við Víghólinn sem er friðað svæði og eldri börnin í húsnæði við Skólatröð.
Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla með áherslu á sjálfsprottna leikinn. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga.
Einkunnarorð skólans eru gleði, samkennd, frelsi og hugrekki og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Leikskólinn Kópahvoll starfar eftir hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar þar sem lögð er áhersla á jákvæð samskipti, ábyrgð, sjálfstæði og virðingu.
Kópahvoll er Réttindaskóli UNICEF og byggir starf sitt á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í skólanum er lögð rík áhersla á að réttindi barna séu virt í daglegu starfi og að börn fái raunveruleg tækifæri til þátttöku og áhrifa. Lýðræði er leiðarljós í öllu starfi leikskólans og eru börnin hvött til að tjá skoðanir sínar, taka þátt í ákvörðunum sem varða leik þeirra og nám og læra að bera virðingu fyrir sjónarmiðum annarra. Með því að rækta lýðræðisleg gildi, samábyrgð og virka þátttöku er markvisst unnið að því að efla börn sem sjálfstæða, ábyrgða og virka þátttakendur í samfélaginu.
Athygli er vakin á því að Kópavogsbær býður upp á 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla, aukinn sveigjanleika í opnunartíma leikskóla og takmarkanir í dymbilviku, milli jóla og nýárs og vetrarfríum. Hér má sjá meira um sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla og aukinn sveigjanleika. Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af stjórnun er kostur.
- Sjálfstæði, metnaður og skipulagshæfni.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Almenn, góð tölvukunnátta.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Um fullt starf er að ræða eða eftir samkomulagi.
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Þeir sem eru ráðnir til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Allir einstaklingar óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Halla Ösp Hallsdóttir leikskólastjóri í síma: 4416501 netfangið: [email protected] eða Stefanía Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 4416502 netfangið: [email protected]
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu Kópahvols
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Góð íslensku kunnátta og ritfærni er skilyrði
- Góð samksiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt matskvarða um tungumálaviðmið
- Sundkort í sundlaugar Kópavogs
- Heilsuræktarstyrkur
- Bætt starfsumhverfi barna og kennarar í leikskólum Kópavogs.
Íslenska










