
Matreiðslumaður / vaktstjóri í eldhúsi á Brasserie Aski
Viltu vera í lykilhlutverki á einum rótgrónasta veitingastað Reykjavíkur og taka þátt í að móta framtíð hans?
Brasserie Askur leitar að metnaðarfullum matreiðslumanni eða reyndum kokki í fullt starf sem vaktstjóri í eldhúsi. Askur hefur tekið á móti gestum frá árinu 1966 og býður upp á fjölbreytt verkefni við à la carte, hlaðborð og veisluþjónustu.
Við erum lítið en öflugt teymi þar sem framlag hvers og eins skiptir máli. Hér færðu ábyrgð, náið samstarf við eiganda og teymi staðarins og raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif.
Starfshlutfall og vinnutími
Fullt starf í 2-2-3 vaktakerfi með 12 klukkustunda vöktum, þar á meðal um helgar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, samkvæmt samkomulagi.
Umsóknir
Sótt er um í gegnum Alfreð. Vinsamlegast láttu ferilskrá og stutta kynningu fylgja ásamt upplýsingum um hvenær þú getur hafið störf.
Nánari upplýsingar veitir Daníel á [email protected].
Umsóknir verða skoðaðar jafnóðum.
-
Undirbúningur og matreiðsla fyrir daglegan rekstur og veislur.
-
Umsjón með eldhúsi á vakt og verkstjórn í þjónustu.
-
Að tryggja stöðug gæði, góða framsetningu og skilvirk vinnubrögð.
-
Að viðhalda góðu skipulagi, hreinlæti og vandaðri meðferð hráefna.
Fyrir áhugasaman og metnaðarfullan einstakling er svigrúm til að taka þátt í þróun matseðla, innkaupum, birgðastýringu og áframhaldandi uppbyggingu staðarins.
-
Menntun í matreiðslu er kostur. Reynsla og góð fagleg vinnubrögð geta komið í hennar stað.
-
Reynsla af matreiðslu á veitingastað og hæfni til að stýra eldhúsi á vakt.
-
Sjálfstæði, ábyrgð og yfirvegun þegar mikið er að gera.
-
Góð samskiptahæfni og vilji til að vinna náið með teyminu.
-
Íslenskukunnátta er kostur en ekki skilyrði.
-
Matur á vakt.
-
Starfsmannaafsláttur utan vinnutíma.
-
Afsláttur á öðrum veitingastöðum í eigu eiganda.
-
Náið samstarf við eigendur og tækifæri til að hafa áhrif á þróun staðarins.
-
Svigrúm til að koma eigin hugmyndum í framkvæmd og þróast í starfi.











