Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

VISS, vinnu og hæfingarstöð á Selfossi óskar eftir aðstoðarmatráð

VISS, vinnu og hæfingarstöð á Selfossi óskar eftir aðstoðarmatráð í eldhús frá og með 1 nóvember 2026 í 65% starfshlutfall, vinnutíminn frá kl. 9:00 til 14:00. Alla virka daga

VISS er vinnustaður sem veitir vinnu og virkni úræði fyrir fólk með skerta starfsgetu.

Markmiðið með starfinu er að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra. VISS vinnur eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.

Á VISS er unnið samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

Um starfið:

Leiðbeinandi tekur á móti mat frá skólaeldhúsinu og sér um að bera hann fram fyrir starfsmenn VISS. Aðstoðarmaður matráðs starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúa morgun og síðdegiskaffi.
  • Undirbúa og framreiða hádegismat sem kemur í hús frá skólaeldhúsi.
  • Sjá um frágang í eldhúsi og fylgja þeim verkferlum sem skólaeldhúsið setur.
  • Annast þrif á eldhúsi, þrífa og ganga frá að loknu starfi.
  • Sjá um nauðsynleg innkaup fyrir rekstur eldhússins.
  • Leiðbeina starfsmanni sem vinnur með honum í eldhúsinu.
  • Pantanir og kaup á vörum í eldhús og þvottahús s.s. matvara og hreinsivörur í samráði við forstöðumann og yfirmann framleiðslueldhúss.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús og þvottahús sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynslu af starfi með fötluðu fólki er kostur.
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvæðni, góð þjónustulund og stundvís.
  • Góð  íslenskukunnátta og hreint sakarvottorð.

 

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar