

Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
ÁTVR leitar að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu. Viðkomandi verður staðgengill matreiðslumanns og tekur þá ábyrgð sem því fylgir í hans fjarveru.
Mötuneyti ÁTVR er staðsett að Stuðlahálsi 2, 110 Reykavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framreiðir morgun- og hádegismat
- Aðstoðar við undirbúning hádegisverðar
- Áfyllingar og afgreiðsla í matsal
- Uppvask og frágangur
Í fjarveru matreiðslumanns
- Yfirumsjón með morgunmat og matreiðsla á hádegisverði
- Sjá til þess að dagleg þrif séu í samræmi við gæðakerfi ÁTVR
- Umsjón með mat- og veisluföngum fyrir fundi og uppákomur
Hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Áhugi á heilsueflandi matargerð
- Snyrtimennska áskilin
- Gott viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 100%.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Sakavottorðs er krafist.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected].
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.











