

Íþróttamiðstöðin á Blönduósi - sundlaugarvörður.
Laus er til umsóknar 100% staða konu sem sundlaugarvörður við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Um er að ræða starf sem unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaplani. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
· Öryggisgæsla
· Baðvarsla í klefum
· Afgreiðsla og þjónusta við gesti
· Þrif
· Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
· Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna.
· Reglusemi.
· Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
· Sjálfstæð vinnubrögð.
· Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
· Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.
Íslenska
Enska










