
Dómvörður
Héraðsdómur Reykjaness óskar eftir að ráða dómvörð í fullt starf. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða frá 1. janúar 2027.
Leitað er að traustum einstaklingi í starf dómvarðar hjá Héraðsdómi Reykjaness. Starfið felur í sér fjölþætt öryggis- og þjónustuhlutverk við dómstólinn.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni dómvarðar eru mjög fjölbreytt en helstu verkefni eru:
- Ýmis verkefni tengd þinghöldum eftir óskum dómara hverju sinni.
- Aðstoð við starfsfólk og gesti dómhússins og gæta öryggis þeirra.
- Eignavarsla og almenn húsvarsla.
- Bregðast við frávikum í öryggismálum í samræmi við verklagsreglur og þjálfun.
- Almenn tækniaðstoð og úrlausn tölvu- og tæknivandamála á vinnustað.
- Umsjón og ábyrgð á að halda dómsölum, biðsvæði og kaffistofu starfsfólks snyrtilegum.
- Annast samskipti við fangaflutningamenn/lögreglu.
- Umsjón með förgun og flokkun á sorpi.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót, samvinnufærni og góð þjónustulund.
- Vandvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Líkamlegt og andlegt atgervi til að mæta óvæntum uppákomum í starfseminni.
- Góð tölvufærni.
- Reynsla og þekking á sambærilegum störfum er kostur.
- Iðnmenntun er kostur sem og önnur menntun sem nýtist í starfi.
Auglýsing birt6. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fjarðargata 9, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
