

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautafélag Akureyrar leitar að ábyrgum og handlögnum starfsmanni við svellagerð og húsvörslu. Þetta er fjölbreytt starf í líflegu íþróttaumhverfi þar sem þú verður hluti af klúbbnum, veitir gestum góða þjónustu og sérð til þess að svellið og aðstaðan séu í toppstandi fyrir æfingar og keppnir.
Við leitum að einstaklingi sem
-
Er áreiðanlegur, stundvís og sýnir frumkvæði.
-
Er handlaginn og óhræddur við að læra á vélar og búnað.
-
Getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á verkefnum.
-
Á auðvelt með samskipti og veitir góða þjónustu.
Vinnutími og kjör
Unnið er samkvæmt vaktapalani á vöktum síðdegis og um helgar. Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Laun samkvæmt kjarasamningi auk viðeigandi vaktaálags.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um sem fyrst. Umsóknir eru teknar til afgreiðslu um leið og þær berast.
Helstu verkefni
-
Svellagerð og umsjón með íshefli.
-
Skautaslípun og umsjón með leiguskautum.
-
Húsvarsla, þrif og almennt viðhald.
-
Þjónusta við gesti og aðstoð við viðburði.
Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur en ekki skilyrði. Þjálfun í svellagerð og skerpingum verður veitt.
Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu.
Íslenska










