Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðarfólk í eldhús - Sóltún í Reykjavík

Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir aðstoðarfólki í eldhús

Sóltún hjúkrunarheimili, hluti af Sóltúni heilbrigðisþjónustu, leitar að öflugum starfskrafi í fjölbreytt starf í eldhúsi. Um er að ræða í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og framleiðsla máltíða
  • Tiltekt á vörum
  • Framreiðsla í kaffiteríu
  • Frágangur eftir máltíðir
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Þekking á gæða- og hollustuháttum við framleiðslu og dreifingu matvæla er nauðsynleg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1/C2)
  • Hreint sakavottorð er skilyrði

Starfskjör og fríðindi í starfi

  • Um vaktafyrirkomulag er að ræða
  • Starfshlutfall er samkomulag
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastykur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um.

Sóltún hefur á að skipa öflugum hópi starfsfólks með mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa. Við leggjum áherslu á styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.

Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur19. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar