Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Starfsmaður í Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, auglýsir laust til umsóknar starf í Tilraunaeldisstöð stofnunarinnar í Grindavík

Í Tilraunaeldisstöðinni fer fram fjölbreytt rannsókna- og þróunarstarf sem tengist fiskeldi og líffræði fiska og annarra vatnalífvera. Rannsóknirnar ná til tegunda bæði í ferskvatni og sjó og miða meðal annars að því að þróa og bæta eldisaðferðir, auk þess að auka þekkingu á líffræði mismunandi tegunda.
Starfið býður upp á tækifæri til að vinna með fjölbreyttar eldislífverur og taka þátt í spennandi rannsókna- og þróunarverkefnum. Um er að ræða fjölbreytt og verklegt starf þar sem dagleg umhirða eldislífvera og rekstur eldiskerfa fara saman við þátttöku í rannsóknum. Lögð er áhersla á að ráða lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn eldisstörf og umhirða fiska á öllum stigum eldisins, frá hrognum til fullorðinna fiska.
  • Ræktun og umhirða lifandi fæðudýra.
  • Eftirlit með eldiskerfum, vatnsgæðum og aðbúnaði eldislífvera.
  • Þátttaka í framkvæmd rannsókna og tilrauna, meðal annars við sýnatökur, mælingar og skráningu gagna.
  • Þrif, viðhald og önnur verkefni sem tengjast daglegum rekstri stöðvarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði fiskeldis, líffræði, búvísinda eða skyldra greina er æskileg. Handbær reynsla af fiskeldi getur komið í stað formlegrar menntunar.
  • Reynsla og þekking á fiskeldisstörfum, kostur
  • Áhugi á fiskeldi, líffræði og rannsókna- og þróunarstarfi.
  • Verkleg færni og reynsla af almennu viðhaldi, kostur
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt11. nóvember 2026
Umsóknarfrestur19. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Staður, Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar