
Atlantik
Ferðaskrifstofan Atlantik er ein af elstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins og hefur verið starfandi í rúmlega 45 ár.
Starfsemi Atlantik snýr annars vegar að því að veita sérhæfða þjónustu fyrir farþega skemmtiferðaskipa og hins vegar að skipuleggja og sjá um hvataferðir, viðburði, ráðstefnur og sérsniðnar ferðir innanlands fyrir erlenda einstaklinga og hópa. Það er heiður að fá að taka þátt í að búa til sem besta upplifun fyrir gesti sem heimsækja Ísland og starfsfólk Atlantik gerir það af fagmennsku og virðingu í öflugri liðsheild. Frumkvæði og útsjónarsemi eru einnig mikilvæg í öllu okkar starfi.
Atlantik vill ráða til sín hæfileikaríkt starfsfólk til góðra verka, sem sýnir starfi sínu einlægan áhuga og vinnur saman sem ein heild að settum markmiðum, á jákvæðum vinnustað, þar sem allir taka þátt og eru virkir í að móta starfsumhverfið. Frumkvæði, góð samskipti og þjónustulund í starfi eru nauðsynlegir eiginleikar og jafnframt eflum við metnað starfsmanna til þess að takast á við krefjandi og þroskandi verkefni við þjónustu við ferðamenn.

Verkefnastjóri með reynslu í hvata- og viðburðateymi
Atlantik leikar að öflugum og skipulögðum verkefnastjóra með viðeigandi reynslu í hvata- og viðburðateymið okkar (MICE). Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi, og hentar einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á ferðaþjónustu, viðburðahaldi og framúrskarandi þjónustu.
Sem verkefnastjóri berð þú ábyrgð á þínum verkefnum frá upphafi til enda – frá hönnun og skipulagningu ferða til framkvæmdar og eftirvinnslu. Þú vinnur í nánu samstarfi við aðra verkefnastjóra, bæði með því að leita eftir og veita stuðning þegar þörf krefur.
Gildi Atlantik eru fagmennska, frumkvæði, teymisvinna og virðing. Gildin okkar er grunnurinn að því hvernig við vinnum saman, þjónustum viðskiptavini okkar og byggjum upp sterka vinnustaðamenningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun ferða, tilboðsgerð, úrvinnsla, skipulagning, framkvæmd og eftirvinnsla hvataferða, viðburða, ráðstefna og sérsniðinna ferðalausna innanlands
- Gerð framkvæmdaráætlana og eftirfylgni verkefna frá upphafi til enda
- Þátttaka í vöruþróun og hugmyndavinnu um nýjungar í ferðaþjónustu
- Teymisvinna og aðstoð við verkefni annarra verkefnastjóra innan teymis á álagstímum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Að lágmarki 2 ára reynsla í viðburðastjórnun
- Reynsla af ferðaþjónustu er skilyrði
- Góð þekking á Íslandi og framboði ferðaþjónustu innanlands
- Góð tölvufærni, sérstaklega í Microsoft Office, og reynsla af öðrum kerfum er kostur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og nákvæmni
- Framúrskarandi þjónustulund, sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi á annasömum tímabilum
- Skapandi hugsun, útsjónasemi og jákvætt viðmót gagnvart viðskiptavinum, birgjum og samstarfsfólki
Fríðindi í starfi
- Faglegt, skemmtilegt og hlýlegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í þróun nýrra ferla
- Fjölbreytt og lærdómsrík verkefni
- Tækifæri til starfsþróunar og að vaxa í starfi
- Öflugt félagslíf og reglulegir viðburðir
- Aðgengi að fræðslu og þjálfun
- Góð vinnuaðstaða og sveigjanlegur vinnutími
- Ýmis fríðindi tengd ferðaþjónustu innanlands
Auglýsing birt27. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Birtinga- og verkefnastjóri á Tvist
Tvist vörumerkjastofa

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri á Verkefnastofu
Norðurorka hf.

Verkefnastjóri fjárfestinga
Rio Tinto á Íslandi

Sérfræðingur í þróun virkjana
Orkusalan

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Verkefnastjóri mannauðsmála
Háskólinn á Akureyri

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

Samningastjóri
Veitur