
Verkefnastjóri - Innleiðing viðskiptavina
Viltu vera í lykilhlutverki í að tryggja framúrskarandi upplifun viðskiptavina og farsæla innleiðingu þeirra hjá atNorth á Akureyri?
Við leitum að öflugum og þjónustumiðuðum aðila sem nýtur þess að leiða flókin innleiðingarverkefni, vinna þvert á ólíka hópa og byggja upp traust og langvarandi sambönd við viðskiptavini.
Í þessu hlutverki verður þú lykilaðili í að tryggja að uppsetning og innleiðing búnaðar og þjónustu viðskiptavina fari fram með öruggum, skilvirkum og faglegum hætti í samræmi við ströngustu kröfur um gæði, rekstur og þjónustu.
Þú munt vinna náið með viðskiptavinum og teymum innan fyrirtækisins til að tryggja árangursríka innleiðingu verkefna, efla traust og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun starfsemi atNorth.
Um starfið
Starfið felur í sér ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu og framkvæmd umfangsmikilla innleiðingarverkefna fyrir viðskiptavini gagnavera atNorth. Þú vinnur náið með sölu-, rekstrar-, verkfræði- og þróunarteymum fyrirtækisins til að tryggja að kröfur viðskiptavina séu uppfylltar og að verkefni skili sér á réttum tíma, innan fjárhagsramma og samkvæmt skilgreindum gæðakröfum.
Lögð er áhersla á að öryggi og gæði séu órjúfanlegur hluti af daglegri framkvæmd, með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
Hefur þú áhuga?
Ef þú hefur áhuga á að leiða stór og krefjandi verkefni, samræma ólíka hagsmunaaðila og tryggja framúrskarandi árangur fyrir viðskiptavini, þá viljum við heyra frá þér.
- Leiða og bera ábyrgð á innleiðingarverkefnum viðskiptavina frá upphafi til enda á starfsstöðvum atNorth
- Tryggja að verkefnum sé skilað á réttum tíma, innan fjárhagsramma og í samræmi við skilgreint umfang og gæðakröfur
- Vera aðal tengiliður viðskiptavina í gegnum innleiðingarferlið og tryggja skýr samskipti og framúrskarandi þjónustuupplifun
- Stýra verkefnaáætlunum, tímamörkum, áhættu, tengslum milli verkefna og eftirfylgni til að tryggja árangursríka framkvæmd
- Vinna náið með sölu-, rekstrar-, verkfræði- og þróunarteymum til að tryggja samræmi um kröfur viðskiptavina og markmið verkefna
- Samhæfa mannauð og önnur úrræði, fylgjast með framvindu verkefna og stýra breytingabeiðnum í gegnum allt innleiðingarferlið
- Tryggja hnökralausa afhendingu verkefna til rekstrarteyma að lokinni innleiðingu, þar á meðal varðandi þjónustuviðbúnað, skjölun og uppsetningu reikningagerðar
- Leiða stöðugar umbætur á ferlum og vinnulagi og tryggja að verkefni uppfylli innri verklagsreglur, öryggiskröfur og viðurkennda staðla atvinnugreinarinnar
- Að lágmarki 5 ára reynsla af verkefnastjórnun á sviði innviða, tæknilausna eða gagnavera, með sannaðan árangur af stjórnun flókinna innleiðingarverkefna
- Öfluga verkefnastjórnunarhæfni og getu til að skipuleggja, forgangsraða og ná árangri í hröðu og þjónustumiðuðu umhverfi
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni og góða reynslu af að vinna þvert á teymi og samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila
- Hæfni til að byggja upp traust, stýra væntingum og viðhalda góðum samskiptum á öllum stigum samstarfs
- Góð þekking á innviðum gagnavera, þar á meðal raforkukerfum, kælikerfum, tengingum og uppsetningu tæknibúnaðar
- Sterk greiningar- og lausnamiðuð hugsun með getu til að greina áhættuþætti og innleiða árangursríkar lausnir
- Reynsla af því að vinna þvert á teymi og samræma ólíka hagsmunaaðila, verkefni og forgangsröðun
- Þekking á verkefnastjórnunaraðferðafræði, svo sem PMP, Prince2 eða sambærilegum aðferðum, er kostur
- Mjög góð enskukunnátta, bæði í ræðu og riti. Kunnátta í íslensku eða öðru norrænu tungumáli er kostur
- Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Enska










