

Þjónusta og þróun: Verkefnastjóri þjónustu
Þjónusta og þróun óskar eftir verkefnastjóra þjónustu. Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli og unnið er í dagvinnu.
Þjónusta og þróun innan Þjónustu- og menningarsviðs ber ábyrgð á fjölbreyttri innri og ytri þjónustu Akureyrarbæjar, meðal annars rekstri þjónustuvers, skjalastjórnun, vefmálum, húsumsjón, rekstri mötuneytis fyrir Ráðhús og Glerárgötu 26 og þjónustu við bæjarráð, bæjarstjórn og bæjarstjóra. Þjónusta og þróun leiðir jafnframt stafræna þróun, umbótaverkefni og þróun notendamiðaðrar þjónustu þvert á starfsemi bæjarins.
Verkefnastjóri þjónustu hefur yfirsýn með starfsemi þjónustuvers og leiðir þróun þjónustunnar, verkferla og notendamiðaðra lausna. Starfið felur í sér verkefnastjórnun, stafræna þróun, eftirfylgni umbótaverkefna og þátttöku í daglegri starfsemi þjónustuvers eftir þörfum.
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur áhuga á að leiða þróun þjónustu og stafrænna lausna sem stuðla að framúrskarandi upplifun íbúa og starfsfólks. Starfið er fjölbreytt og hentar einstaklingi sem hefur frumkvæði, sterka skipulagshæfni og brennur fyrir þróun og umbótum.
Helstu verkefni
- Umsjón með daglegri starfsemi og skipulagi í þjónustuveri bæjarins.
- Tekur þátt í daglegum verkefnum þjónustuvers eftir þörfum, m.a símsvörun, afgreiðslu og meðferð erinda.
- Tekur á móti og svarar erindum, ábendingum og fyrirspurnum og/eða kemur þeim í réttan farveg.
- Stofnun og meðferð mála í skjalakerfi bæjarins og eftir atvikum undirbúningur dagskrárliða fyrir fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar.
- Þjónustustjórnun þvert á svið bæjarins, þ.m.t yfirsýn með svörun ábendinga, erinda og annarra fyrirspurna og vinna að umbótum á því sviði.
- Ber ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni umbótaverkefna á sviði þjónustu, notendaupplifunar og gæðamála.
- Stýrir og/eða tekur þátt í stafrænum þróunarverkefnum og innleiðingu stafrænna lausna þvert á svið og deildir bæjarins, einkum sem snúa að miðlægri þjónustu bæjarins og þjónustuveri, og vinnur að því að greina og nýta tækifæri sem felast í sjálfvirknivæðingu og gervigreind til að bæta þjónustu og verkferla.
- Tekur þátt í miðlun upplýsinga og efnis á heimasíðu.
- Sinnir stoðþjónustu við annað starfsfólk og stjórnendur bæjarins, svo sem flugbókunum, innkaupum, uppgjöri, skráningum og afstemmingum.
- Hefur umsjón með stjórnborði íbúaapps sem felur meðal annars í sér umsýslu íbúakorta og miðlun upplýsinga til bæjarbúa.
- Vinnur að innleiðingu þjónustuviðmiða og tryggir eftirfylgni þeirra.
- Annast umsýslu aðgangskorta og aðgangsstýringarkerfis.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólagráða sem nýtist í starfi (BA/BS/B.Ed).
- Reynsla af skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni verkefna.
- Þekking og reynsla af þjónustustjórnun kostur.
- Þekking og reynsla af stafrænum lausnum kostur.
- Lausnamiðuð hugsun og umbótafærni.
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði í ræðu og riti.
- Mikil samskiptafærni og þjónustulund.
- Drifkraftur, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókninni skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda og menntun ásamt greinargóðum upplýsingum um þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi verkefnastjóra þjónustu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: [email protected]
Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Stefánsdóttir, forstöðumaður þjónustu og þróunar í 460 1025 og á netfangið [email protected]
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026
Íslenska
Enska


















