

Verkefnisstjóri barna-, ungmenna- og frístundastarfs
Húnaþing vestra auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf verkefnastjóra barna-, ungmenna- og frístundastarfs í nýrri samfélagsmiðstöð sveitarfélagsins.
Um er að ræða nýtt 100% starf í samfélagsmiðstöð Húnaþings vestra í Félagsheimilinu Hvammstanga. Starfið felur í sér faglega ábyrgð á skipulagi og framkvæmd frístundastarfs, félagsmiðstöðvarstarfs, klúbbastarfs, Krakkasveiflu og lengdrar viðveru.
Leitað er að einstaklingi sem hefur ríkan áhuga á starfi með börnum og ungmennum, góða samskiptahæfni og metnað til að byggja upp fjölbreytt, öruggt og hvetjandi frístunda- og félagsstarf í Húnaþingi vestra.
- Ber ábyrgð á skipulagi, framkvæmd frístundastarfs, félagsmiðstöðvarstarfs, klúbbastarfs, Krakkasveiflu og lengdrar viðveru.
- Hefur faglega yfirsýn yfir starf með börnum og ungmennum, þátttöku þeirra, öryggi, virkni og tengingu við skóla, farsældarteymi, íþróttafélög og aðra aðila.
- Sinnir daglegu starfi með börnum og ungmennum og stýrir störfum/tímavinnu í frístund og félagsmiðstöð.
- Ýmis störf í samfélagsmiðstöð, svo sem samskipti við leigutaka, uppröðun og undirbúningur leigu.
Menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af frístundastarfi, félagsmiðstöðvarstarfi, forvarnarstarfi eða verkefnastjórnun er kostur.
- Góð hæfni í samskiptum við börn, ungmenni og foreldra.
- Hæfni til að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi umhverfi fyrir börn og ungmenni.
- Frumkvæði, ábyrgðarkennd og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð samstarfshæfni og vilji til teymisvinnu.
- Sveigjanleiki varðandi vinnutíma, þar sem starfsemi getur farið fram síðdegis, á kvöldin og um helgar eftir atvikum.
- Hreint sakavottorð og óflekkað mannorð.
Íslenska









