Stál og Suða
Stál og Suða

Verkefnastjóri með reynslu af stálsmíði og mannvirkjaverkefnum

Stál og Suða óskar eftir að ráða sjálfstæðan og skipulagðan verkefnastjóra með reynslu af stálsmíði og mannvirkjaverkefnum. Starfið hentar einstaklingi sem hefur bæði tæknilega þekkingu og reynslu af verkefnastjórnun og getur leitt verkefni frá fyrstu mælingum og hönnun til framkvæmdar og verkloka.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mælingar og úttektir á verkstöðum
  • Hönnun og gerð smíða- og framleiðsluteikninga í Autodesk Inventor
  • Áætlanagerð, þar á meðal tíma-, verk- og kostnaðaráætlanir
  • Eftirfylgni með framvindu verkefna og skýrslugjöf til verkkaupa
  • Gerð áhættumats og þátttaka í öryggis- og gæðamálum verkefna
  • Umsjón með framkvæmdum og verkstýring á verkstæði og verkstöðum
  • Samskipti og samvinna við verkkaupa, eftirlitsaðila, birgja og undirverktaka
  • Umsjón með verklokum og afhendingu verkefna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun á sviði stálsmíði, vélsmíði, iðnfræði, tæknifræði eða sambærilegra greina.
  • Meistararéttindi í stálsmíði eða skyldum greinum.
  • Reynsla af notkun OS Worker eða sambærilegra verkefna- og skráningarkerfa.
  • Reynsla af verkefnastjórnun innan stálsmíði, málmiðnaðar, mannvirkjagerðar eða sambærilegra verklegra framkvæmda
  • Góð kunnátta í Autodesk Inventor
  • Reynsla af mælingum og tæknilegum úttektum vegna stálsmíði og stál- og glerhandriða
  • Þekking og reynsla af gerð tíma- og verkáætlana, framvindueftirliti og áhættumati.
  • Gott skipulag, sjálfstæð vinnubrögð og sterk lausnamiðuð nálgun
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Gild ökuréttindi

Um fyrirtækið

Stál og Suða ehf. er stál- og vélsmiðja með starfsstöð í Hafnarfirði. Fyrirtækið sérhæfir sig í almennri stálsmíði, smíði og uppsetningu stál- og glerhandriða ásamt fjölbreyttum sérverkefnum fyrir verktaka, fyrirtæki og einstaklinga.

Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur8. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Stapahraun 8
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.Autodesk InventorPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StálsmíðiPathCreated with Sketch.StálsmíðiPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar