Akureyri
Akureyri
Akureyri

Listasafnið á Akureyri: Verkefnastjóri sýninga

Viltu vinna með myndlist í lifandi og spennandi starfsumhverfi?

Listasafnið á Akureyri leitar að öflugum og skipulögðum verkefnisstjóra sýninga til liðs við frábært teymi starfsfólks sem þar starfar.

Starfið er fjölbreytt, skapandi og annasamt og felur meðal annars í sér skipulagningu og framkvæmd sýninga, uppsetningu listaverka, samningagerð og flutninga verka.

Það reynir á frumkvæði, nákvæmni, útsjónarsemi og hæfni til að vinna undir álagi. Starfið er jafnframt líkamlega krefjandi og gerir kröfur um gott úthald, þar sem uppsetning og frágangur sýninga stór hluti þess.

Um er að ræða ótímabundið starf í 100% starfshlutfalli, frá 1. febrúar 2027. Til greina kemur að ráða tvo einstaklinga í 50% starfshlutfall. Vinnutími er að jafnaði á dagvinnutíma virka daga, milli kl. 8 og 17, en einnig má gera ráð fyrir einhverri kvöld- og helgarvinnu vegna viðburða.

Ertu skipulögð/skipulagður, úrræðagóð/ur, hefur áhuga á myndlist og að starfa í lifandi menningarumhverfi? Þá viljum við heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastjóri sýninga undirbýr allar sýningar í safninu og ber ábyrgð á samræmingu verkþátta sem snúa að samskiptum, samningagerð og undirbúningi með listafólki og öðrum samstarfsaðilum. Hann annast uppsetningu sýninga og niðurtöku, ber ábyrgð á tæknimálum sýninga og vinnur jafnframt að öðrum viðburðum í safninu. Verkefnastjóri skipuleggur flutning listaverka til og frá sýningum, annast pökkun þeirra og skipuleggur útlán til samtarfsaðila og stofnana Akureyrarbæjar.

Starfið felur í sér umtalsverða verklega vinnu og krefst tæknilegrar þekkingar, skipulagshæfni og líkamlegs úthalds. Jafnframt reynir á sjálfstæði, frumkvæði, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð vinnubrögð. Hann skal hafa getu til að verkstýra öðrum, bregðast við óvæntum aðstæðum og halda tímalínu í krefjandi starfsumhverfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólamenntun (BA/BS) sem nýtist í starfi.
  • ​Reynsla af verkefnastjórn og sýningaruppsetningum.
  • ​Kunnátta til að annast tæknilegar hliðar sýningarhalds.
  • ​Þekking og reynsla af sýningarstjórnun er æskileg.
  • ​Skipulagsfærni, frumkvæði og og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • ​Góð samskiptafærni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
  • ​Góð almenn tölvufærni.
  • ​Íslensku- og enskukunnátta.
  • ​Geta til að vinna undir álagi og tímapressu.
  • ​Gott líkamlegt atgervi.
  • ​Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að athafnir og framkoma á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.​
Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur11. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar