

Leikskólinn Lundarsel-Pálmholt: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Leikskólinn Lundarsel-Pálmholt óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun (BA, BS eða B.Ed.) sem nýtist í starfi, í 100% ótímabundna stöðu.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf í byrjun janúar 2027, en upphafsdagur getur verið samkvæmt samkomulagi.
Lundarsel-Pálmholt er sjö deilda leikskóli í tveimur húsum, Lundarseli við Hlíðarlund og Pálmholti við Þingvallarstræti. Börnin eru frá 12 mánaða til sex ára. Auglýst er eftir starfsmanni á deild með elstu börnunum í Lundarseli.
Í Lundarseli-Pálmholti leggjum við áherslu á lærdómsríkt og skapandi umhverfi þar sem áhugi, leikgleði og undrun barnanna fá að njóta sín. Við lítum á leikinn sem hornstein leikskólastarfsins og leggjum því mikla áherslu á að leikgleði barnanna fái notið sín í daglegu lífi leikskólans. Við vinnum með barnasáttmálann. Áherslur skólans eru teymisvinna, heimspeki, jafnrétti, hreyfing og heilsa, svo og SMT-skólafærni.
Einkunnarorð okkar eru: Glaðir spekingar sem leika og læra saman.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://lundarsel.karellen.is/
Ert þú tilbúin(n) til að vera með okkur í liði og leggja þitt af mörkum?
Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum og mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.
- Að annast uppeldi og menntun barna, fylgjast með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins.
- Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Að taka þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Að vinna í nánu samstarfi við foreldra og forráðamenn og taka þátt í fundum á vegum leikskólans.
- Háskólapróf í leikskólakennarafræðum eða önnur háskólamenntun (B.Ed., BS, BA) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi í leikskóla.
- Jákvæðni, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleiki.
- Góð samskiptafærni, frumkvæði og hæfni til að vinna í teymi.
- Góð íslenskufærni í ræðu og riti.
- Góð tölvufærni.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










