

Verkefnastjóri - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum verkefnastjóra til starfa hjá Heyrnar og talmeinastöð.
Megin ábyrgð starfsins er verkefnastjórn tveggja ára tilraunaverkefnis um talmeinaþjónustu í grunnskólum sem hófst haustið 2026 að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi barna að talmeinaþjónustu með því að færa þjónustuna í nærumhverfi þeirra, efla samstarf fagstétta og þróa nýtt verklag við veitingu þjónustunnar. Verkefnastjóri mun gegna lykilhlutverki í skipulagningu, samhæfingu, eftirfylgni, utanumhaldi um gögn og mati á árangri verkefnisins í nánu samstarfi við fagfólk, stjórnendur og aðra hagaðila. Starfið felur einnig í sér önnur þróunar- og umbótaverkefni samkvæmt ákvörðun forstöðumanns.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Um er að ræða 80-100% tímabundið starf til 31. ágúst 2028. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
-
Verkefnastjórn, skipulagning og eftirfylgni tilraunaverkefnis um talmeinaþjónustu í grunnskólum
-
Samhæfing og samstarf við grunnskóla, sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og aðra hagaðila
-
Gerð og eftirfylgni verkefnaáætlana, verkþátta og tímaáætlana
-
Þátttaka í þróun og innleiðingu nýs verklags og þjónustuferla
-
Söfnun og greining ganga og upplýsinga, skilgreining árangursmælikvarða og mat á framvindu og árangri verkefnisins
-
Undirbúningur stöðuskýrslna, kynninga og annarrar upplýsingagjafar
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu verkefna
-
Framúrskarandi skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Framúrskarandi samskiptahæfni
-
Góð greiningarhæfni og færni í að miðla upplýsingum með skýrum hætti
-
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
-
PMP-vottun (Project Management Professional) er kostur
-
Þekking á aðferðarfræðinni skapandi hugsun (Design Thinking) er kostur
-
Reynsla af umbótavinnu og gæðakerfum er kostur
-
Þekking á heilbrigðisþjónustu, menntakerfi eða opinberri stjórnsýslu er kostur
-
Reynsla af árangursmati og gagnagreiningu er kostur
Íslenska
Enska



















