
Húnaþing vestra
Kemurðu ekki barninu á leikskóla? - við eigum leikskólapláss.
Ertu í of litlu húsnæði? - hjá okkur færðu meira pláss fyrir minni pening.
Fer of mikill tími í umferðarteppur? - hjá okkur er nóg pláss fyrir bílinn þinni.
Og störfin?
Við eigum þau.
Húnaþing vestra er vel staðsett, miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins en aðrir þéttbýliskjarnar Laugarbakki og Borðeyri. Heildarfjöldi íbúa er um 1250 og hefur farið vaxandi undanfarin ár. Uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið all nokkur síðustu ár og áform uppi um áframhaldandi húsnæðisuppbyggingu.
Niðurstöður íbúakannana hafa leitt í ljós almenna ánægju íbúa í Húnaþingi vestra með sveitarfélagið sitt og þá þjónustu sem þar er veitt. Til dæmis hafa íbúar verið þeir ánægðustu á landinu með heilbrigðisþjónustu og þjónustu við aldraða, næst ánægðastir á landinu með menningarlíf og tónlistarskóla og þriðju ánægðustu á landinu með vörúrval svo fátt eitt sé nefnt.
Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf. Gott framboð er af íþrótta-og tómstundastarfi sem er í sífelldri þróun. Sveitarfélagið er útvistarparadís, sundlaugin á Hvammstanga er fyrsta flokks, einnig er þar íþróttahús með þreksal og er félagsstarf afar fjölbreytt. Blómlegt menningarlíf er til staðar, kórar, leikflokkur, dansskóli, alþjóðlegt brúðuleikhús, menningarfélag o.fl.
Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.

Verkefnisstjóri menningar, viðburða og samfélagsstarfs
Húnaþing vestra auglýsir eftir öflugum og skapandi einstaklingi í fjölbreytt starf verkefnastjóra menningar, viðburða og samfélagsstarfs í nýrri samfélagsmiðstöð sveitarfélagsins.
Um er að ræða 100% starf í samfélagsmiðstöð Húnaþings vestra í Félagsheimilinu Hvammstanga. Samfélagsmiðstöðin verður vettvangur menningar, tómstunda, viðburða, félagsstarfs og samfélagslegrar virkni fyrir íbúa á öllum aldri.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu nýrrar starfsemi, vinna með fjölbreyttum hópum og þróa lifandi dagskrá í samstarfi við íbúa, félagasamtök, stofnanir og aðra samstarfsaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur og þróar menningar-, viðburða- og samfélagsstarf í samfélagsmiðstöð.
- Ber ábyrgð á skipulagningu viðburða, opinni dagskrá, samstarfi við félagasamtök, hópa og einstaklinga sem nýta húsið.
- Hefur umsjón með dagskrá fyrir fullorðna, eldri borgara, opin samfélagsverkefni, sýningar, námskeið og smærri viðburði.
- Styður við útleigu þ.m.t. uppröðun og undirbúning, kynningar, dagskrárgerð og samnýtingu rýma.
- Hefur fasta viðveru í starfi frístundae, Krakkasveiflu og félagsmiðstöðvar.
- Ýmis störf í samfélagsmiðstöð, svo sem uppröðun, samskipti við leigutaka og undirbúningur útleigu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun, menningarstarfi eða félagsstarfi er kostur.
- Reynsla af samstarfi við félagasamtök, hópa, íbúa eða stofnanir er kostur.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Þjónustulund, jákvæðni og lausnamiðað viðhorf.
- Hæfni til að vinna með ólíkum aldurshópum og fjölbreyttum notendum hússins.
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til kynningar- og upplýsingamiðlunar.
- Sveigjanleiki varðandi vinnutíma, þar sem starfsemi getur farið fram síðdegis, á kvöldin og um helgar eftir atvikum.
- Hreint sakavottorð og óflekkað mannorð.
Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Klapparstígur 2, 530 Hvammstangi
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur á safn
Sveitarfélagið Hornafjörður

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri viðburða
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Verkefnastjóri fjárfestinga
Rio Tinto á Íslandi

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali