Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Tröllaborgir: Starfsmaður í stoðþjónustuteymi

Leikskólinn Tröllaborgir á Akureyri leitar að iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, leikskólakennara, sérkennara eða einstaklingi með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi til að starfa í stoðþjónustuteymi skólans. Um er að ræða ótímabundna ráðningu í 80–100% starfshlutfalli. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Daglegt líf í Tröllaborgum snýst um leik, athafnir, verkefni og samskipti sem miða að því að gefa börnunum fjölbreytt tækifæri til að læra, helst með því að uppgötva og reyna sjálf en stundum með dyggri aðstoð annarra. Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.

Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.

Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir börnum sem þurfa viðbótarþjónustu sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Vinnur í nánu samstarfi við forráðamenn og situr fundi og viðtöl með þeim
  • Vinnur í nánu samstarfi við stoðþjónusteymi leikskólans undir stjórn sérkennslustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi þarf að hafa lokið námi í iðjuþjálfun, þroskaþjálfun,  leikskólakennara-/sérkennaranámi eða annarri háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.Ed, BS eða BA) og hafa tilskilin starfsréttindi eftir því sem við á.
  • Óskað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingi.
  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, faglega teymisvinnu og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Reynsla af starfi í leikskóla og við sérkennslu er kostur.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tröllagil 29, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar