

Giljaskóli: Grunnskólakennari á miðstigi
Laus er til umsóknar tímabundin staða grunnskólakennara á miðstigi í Giljaskóla á Akureyri skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Um er að ræða allt að 100% starfshlutfall og verður ráðið í starfið frá 15. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Einkunnarorð Giljaskóla eru „Ábyrgð – Virðing – Vinsemd“.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Kennari er hluti af kennarateymi, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við kennara teymisins og aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsmenntun er æskileg.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
- Reynsla af teymisvinnu æskileg.
- Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Áhugi á þróunarstarfi.
- Góð íslenskuklunnátta í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










