

Leikskólinn Tröllaborgir: Deildarstjóri
Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Í Tröllaborgum leggjum við áherslu á Lífsleikni í leikskóla og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi, bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is/
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli stjórnenda og deildarinnar.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
- Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Ber ábyrgð á að á deildinni sé unnið eftir skólanámskrá, starfsáætlunum og ársáætlun leikskólans.
- Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun eftir þörfum.
- Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við skólastjóra
- Situr fundi sem haldnir eru á vegum skólans.
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun (B.Ed., BA eða BS) sem nýtist í starfi skólans.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af stjórnun deilda er kostur.
- Jákvæðni, sveigjanleiki, sjálfstæði og frumkvæði.
- Samskiptafærni og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
- Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Áhugi á þróunarstarfi og vera reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










