
Hjallastefnan
Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla.
Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands.
Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta.
Skólar Hjallastefnunnar starfa sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Leikskólinn Vífilsholt óskar eftir kennurum/leiðbeinendum
Ertu jákvæður og lífsglaður einstaklingur sem vilt vinna í góðu starfsumhverfi og tileinka þér starfshætti Hjallastefnunnar, þá skaltu sækja um starf á Vifilsholti.
Okkar gildi eru kærleikur, sköpun og lýðræði í lífsmáta og starfi. Sérstaklega leitum við að framtíðarsamstarfsfólki sem brennur fyrir því að gefa börnum gleðiríka og góða daga og vera í skemmtilegu samstarfi, fólki sem vill leika.
Vífilsholt er lítill leikskóli staðsettur í náttúruperlunni við Vífilsstað í Garðabæ, þar eru óendanlega margir möguleikar á að nýta náttúruna og náttúrlegan efnivið í öllu starfi með börnunum. Lögð er áhersla á sköpunargleði og ímyndunarafl í leik og starfi. Í leikskólanum eru börn á aldrinum 1 - 5 ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að elska og bera virðingu fyrir börnum
- Að vinna af ástríðu að uppeldi og menntun ungra barna
- Að horfa á dag hvern sem ævintýr
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun
- Önnur uppeldismenntun - leikskólaleiðbeinandi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Good Icelandic language skills required
- Reynsla af vinnu með börnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Útivist í dásamlegu umhverfi
- Frítt hollt fæði
- Vinnufatnaður
- Vinnustytting
- Þjálfun í starfi
- Einstakur hópur samstarfsfólks sem tilheyrir lærdómssamfélaginu sem er Hjallastefnan
Auglýsing birt14. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vífilstaðavegur 118
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðHugmyndaauðgiMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Heilsuleikskólinn Heiðarsel - Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla
Reykjanesbær

Laus störf: leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Tjarnarskógur

Giljaskóli: Þroskaþjálfi við sérdeild
Akureyri

Brekkuskóli: Félagsmiðstöðvarfulltrúi
Akureyri

Leikskólakennara við Lyngholt Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Leikskólinn Lyngholt Reyðarfirði óskar eftir deildarstjóra á elstu deild.
Leikskólinn Lyngholt

Þroskaþjálfi eða háskólamenntaður sérfræðingur í skammtímadvöl- Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær

Hreiðrið ungmennahús leitar að frístundaleiðbeinendum fyrir veturinn 2026-2027
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Leikskólinn Álfasteinn
Hafnarfjarðarbær

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Aðstoðarleikskóla- og verkefnastjóri
Leikskólinn Hraunborg