

Þroskaþjálfi eða háskólamenntaður sérfræðingur í skammtímadvöl- Svöluhraun
Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa eða starfsmann með sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar.
Starfshlutfall er 80% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld-, nætur- og helgarvöktum aðra hvora helgi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. október 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
- Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf, fræðslu og samskiptum við aðrar stofnanir.
- Sinnir faglegum verkefnum starfsstöðvarinnar undir stjórn forstöðumanns
- Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
- Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda
- Almenn heimilisstörf
- Veitir fötluðu fólki einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi
- Setja upp og fylgja eftir þjónustuáætlunum sem og starfsáætlun
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfafræða, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Starfsleyfi á viðeigandi sviði.
- Reynsla af sambærilegu starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Samstarf- og skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og samviskusemi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð tölvukunnátta
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Már Bogason, [email protected]
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska





















