Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun - Drekavellir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa eða starfsmann með sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og sjálfstætt líf.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld og helgarvaktir. Óska eftir starfsmanni í 40 - 80 % starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfsstöðvar
  • Sinnir faglegum verkefnum starfsstöðvarinnar undir stjórn forstöðumanns
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotanda
  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfafræða, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Starfsleyfi á viðeigandi sviði
  • Reynsla af sambærilegum störfum með fötluðu fólki æskileg
  • Samstarfs og skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og samviskusemi
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópska tungumálaramma
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
  • Ökuréttindi skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma: 664-5726, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengur og er til og með 13. júlí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt9. júlí 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar