Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilið Drekasel

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Drekaseli sem er frístundaheimili fyrir börn með einhverfu frá kl. 13:00-16:30 virka daga. Sérstök áhersla í starfinu er að koma til móts við öll börn og mikilvægt er að umsækjandi hafi jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is

Starfshlutfall ráðningar er 50% en möguleiki er á aukningu í starfshlutfalli (allt að 100%) með því að vinna einnig í Hraunvallaskóla eða Hraunborg (deild fyrir börn með einhverfu) sem skóla- og frístundaliði fyrir hádegi. Ráðið er í starfið frá 10. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, [email protected], Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected] og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, [email protected] eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur15. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (21)
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Smáralundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi - tímabundið starf til 31. des.2026
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Leikskólastjóri - leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi óskast til starfa á skammtímadvöld fyrir fötluð ungmenni - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í baðvörslu - Íþróttahús Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Móttöku- og þjónustufulltrúi í Hafnarborg 
Hafnarfjarðarbær