Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Starfsmaður í Frístundaklúbbinn Kotið

Frístundaklúbburinn Kotið leitar að sjálfstæðum einstakling með góða færni í mannlegum samskiptum til að vinna í lengdri viðveru fyrir fötluð grunnskólabörn í 5. - 10. bekk í vetur.

Starfið felst í tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-16 ára. Markmið lengdu viðverunnar er að efla félagslegan þroska þátttakenda og stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungmenna í frístundum. Í starfinu er nærumhverfið notað til að þjálfa ungmennin í sjálfstæði, félagsfærni og samskiptafærni. Þátttakendunum er mætt á þeirra grundvelli og þeim veitt þjónusta við hæfi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-16 ára. 
  • Einstaklingsmiðuð þjónusta 
  • Umbætur og þróun 
  • Upplýsingarmiðlun 
  • Samskipti og samstarf við starfsfólk, þátttakendur, foreldra, skóla og hinar ýmsu stofnanir sem tengjast starfseminni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri 
  • Reynsla í starfi með fötluðum er kostur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Í boði er allt að 50% starf. Vinnutími er 12:45-16:15  
  • Starfstöð er við Tryggvagötu 23a Selfossi 
  • Hreint sakavottorð skilyrði 
Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar