Hrunamannahreppur
Hrunamannahreppur
Hrunamannahreppur

Frístundamiðstöðin á Flúðum leitar að öflugum starfsmanni.

Vilt þú starfa með börnum og ungmennum á Flúðum?
Frístundamiðstöð á Flúðum leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingum til starfa.

Frístundaleiðbeinandi óskast í um 75% starf frá 1. ágúst 2026.

Frístundamiðstöðin þjónustar nemendur í 1.–10. bekk Flúðaskóla og býður upp á fjölbreytt frístunda- og félagsstarf eftir skóla.

Vinnutími

Frístund (1. - 4. b) frá því skóla lýkur til kl. 16:15 virka daga.
Félagsmiðstöð fyrir miðstig og unglingastig síðdegis og á kvöldin.
Starfsfólk vinnur á opnunum samkvæmt skipulagi.

Starfið fylgir skóladagatali Flúðaskóla.

Í júní eru sumarnámskeið fyrir yngri börn og gert er ráð fyrir sumarleyfum í júlí.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leiðbeina og styðja börn og ungmenni í leik og starfi, bæði í lengdri viðveru yngstu barna grunnskólans og í félagsmiðstöð fyrir ungmenni á svæðinu. 

Taka þátt í skipulagningu og framkvæmd verkefna og viðburða.

Tryggja jákvætt og öruggt umhverfi barna.


Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingum sem:

Hafa áhuga á að starfa með börnum og ungmennum.
Eru jákvæðir, ábyrgir og eiga auðvelt með samskipti.
Sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt sem og í teymi.
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur. 
Gerð er krafa um hreint sakavottorð samkvæmt barnaverndarlögum og lögum um íþróttastarf.

Hér má sjá myndband sem sýnir frá barna og unglingastarfi á Flúðum: https://m.youtube.com/watch?v=6qYSsxgj3iQ#

Auglýsing birt29. júní 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Langholtsvegur 166894, 845 Flúðir
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar