Leikskólinn Vinaminni
Leikskólinn Vinaminni
Leikskólinn Vinaminni

Leikskólakennari / leiðbeinandi

"Viltu taka þátt í að skapa hlýlegt og faglegt umhverfi þar sem vellíðan og þroski barna er í forgrunni?"

Vinaminni er sjálfstæður 4 deilda leikskóli í Asparfelli með 86 börnum á aldrinum 1-6 ára. Vinaminni bíður upp á hlýlegt og lærdómsríkt umhverfi þar sem samhentur hópur leggur áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnunum.

Í Vinaminni er lögð áhersla á að börn fá tækifæri til að prófa og læra sjálf, að þeim líði vel og samskipti einkennist af virðingu og viðurkenningu.

Hjá okkur er leikurinn aðalnámsleið barnsins þar sem börn læra í gegnum leikinn og er markmið okkar að rækta sjálfstraust barna og styrkja félagsfærni og málþroska þeirra í styðjandi umhverfi.

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum leikskólakennara, leikskólaliða eða leiðbeinanda sem vill taka þátt með okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
  • Starfar með börnum í leik og starfi og stuðlar að vellíðan þeirra
  • Tekur þátt í faglegu starfi deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Framfylgir faglegri stefnu leikskólans
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af leikskólastarfi æskileg
  • Þolinmóður og jákvæður einstaklingur með góða færni í mannlegum samskiptum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Gott vald á íslenskri tungu, bæði rituðu og töluðu máli nauðsynleg
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði
  • Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi
  • Stuðningur og sveigjanleiki vegna náms í leikskólakennafræðum
Auglýsing birt24. júní 2026
Umsóknarfrestur6. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Asparfell 10, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar