

Óskum eftir kennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg
„Viltu starfa á stað þar sem vellíðan barna og starfsfólks er í forgrunni?“
Ævintýraborg við Nauthólsveg er 6 deilda leikskóli með 90 börnum. Í leikskólanum starfar samhentur og hlýr hópur sem leggur ríka áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnum.
Leikskólinn er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem Öskjuhlíð og Nauthólsvík eru hluti af okkar daglega uppeldis- og námsumhverfi.
Gildi leikskólans eru: Virðing - Vinátta - Vellíðan
Við trúum því að börn læri best í gegnum leik, forvitni og tengsl og að starfsfólk sem fær að njóta sín skapi bestu aðstæðurnar fyrir börnin.
Helstu áherslur okkar eru útinám, læsi, félagsleg færni og nám í gegnum leik þar sem forvitni og vellíðan barna er í fyrirrúmi.
Nú leitum við að öflugum og metnaðarfullum leikskólakennara sem vill taka þátt í þessu ævintýri með okkur.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af leikskólastarfi æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi
- Frítt fæði
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Menningar- og bókasafnskort
- Sundkort í allar sundlaugar í Reykjavík
- 36 stunda vinnuvika
Íslenska










