

Leikskólinn Akrar - starfsmaður í stuðning
Leikskólinn Akrar auglýsir eftir starfsmanni til að bera ábyrgð á stuðningi við barn með sérþarfir í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
Við leitum að drífandi starfsmanni í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og allskonar fólki eru miklar líkur á að þú fallir vel inn í hópinn okkar. Starfsandi á Ökrum er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.
Akrar er fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegnum leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi. Á Ökrum vinnum við eftir Uppeldi til ábyrgðar (uppbyggingastefnan). Uppeldi til ábyrgðar snýst að mestu um samskipti, ef samskipti eru góð og gefandi þá má byggja á þeim árangursríkt nám. Þetta er aðferð við að kenna sjálfstjórn og sjálfsaga og styrkja einstaklinga í því að læra af mistökum.
Viltu vera með í okkar liði?
- Að sinna barni með sérþarfir
- Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
- Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, aðra starfsmenn og fagaðila
- Leyfisbréf til kennslu*, uppeldismenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi í starfi
- Á Ökrum er full vinnustytting sem er 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-, páska- og jólafrí
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku vegna vinnustyttingar starfsfólks
- Leikskólinn lokar kl. 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Íslenska



















