

Stuðningsfulltrúi - Grunnskólinn í Borgarnesi
Grunnskólinn í Borgarnesi óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í 60 - 100% stöðuhlutfall fyrir skólaárið 2026-2027.
Við leitum að ábyrgum aðila í störf stuðningsfulltrúa. Þetta starf felst í stuðningi við nemendur við skólann. Unnið er náið í teymi með stuðningsfulltrúum, kennurum, þroskaþjálfa og öðrum sérfræðingum.
Í Grunnskólanum í Borgarnesi eru um 330 nemendur í 1.–10. bekk og um 60 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur samhentur starfsmannahópur með það að leiðarljósi að gera gott skólastarf enn betra.
Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.
Aðstoða við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
Vinna eftir áætlun sem kennari og/eða þroskaþjálfi hefur útbúið
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi með börnum er æskileg
Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Samskipta- og samstarfshæfni
Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
Jákvæðni og sveigjanleiki
Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
Afsláttur hjá Símanum
Afsláttur á bókasafninu
Íslenska
















