Garðabær
Garðabær
Garðabær

Verkefnastjóri barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn

Garðabær auglýsir nýtt starf verkefnisstjóra í málefnum barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn á fræðslu- og frístundasviði. Verkefnastjóri fer með faglega forystu í málaflokknum og ábyrgð á stuðningi og ráðgjöf til stjórnenda, kennara og starfsfólks í leikskólum, grunnskólum, frístundum og félagsmiðstöðvum. Verkefnastjóri starfar bæði út á vettvangi sem og í samstarfi við starfsfólk fræðslu-og frístundasviði og aðra hagaðila sem koma málefnum barna innan og utan Garðabæjar. Mikilvægt er að verkefnastjóri búi yfir leiðtoga- og samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur fræðslu og ráðgjöf fyrir foreldra, stjórnendur, kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi og stuðlar markvisst að árangursríku samstarfi og samfellu milli skólastiga
  • Umsjón með mótun og eftirfylgni heildstæðrar áætlunar um inngildingu barna í skóla-og frístundastarfi
  • Vinnur með teymi ÍSAT kennara
  • Heldur utan um þarfagreiningar og skýrslur meðal annars um fjölda og stöðu barna
  • Fylgist með skipulagi kennslu í skólum og gerir tillögur um úrbætur eftir atvikum.
  • Leiðandi um ráðgjöf er varðar kennsluaðferðir og námsefni sem nýtast í starfi
  • Ábyrgð á fræðslu til starfsfólks og forráðamanna
  • Situr fundi með starfsfólki í skóla- og frístundastarfi og eftir atvikum foreldrum
  • Hefur samstarf við íþrótta- og frístundafélög er varða málefni barna og ungmenna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði menntavísinda, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi (MA, M.Ed eða diploma).
  • Reynsla og þekking af móttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
  • Starfsreynsla og hæfni í ráðgjöf við kennslu og í frístundastarfi fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Enskukunnátta á stigi B2 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla og hæfni til verkefnastýringar
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu

Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur29. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar