
Verkefnastjóri
Viltu taka þátt í að byggja upp eitt öflugasta endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki landsins?
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt fyrirtæki með háleit markmið og skýra framtíðarsýn. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og traustustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sömu grunngildum um heiðarleika, fagmennsku og metnað.
Við leitum að metnaðarfullum verkefnastjórum með reynslu, sem vilja taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins. Hér færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif, vinna náið með breiðum hópi viðskiptavina og taka þátt í að móta fyrirtæki sem stefnir að því að verða leiðandi á markaðnum.
Framtíð fyrirtækisins verður mótuð af fólkinu sem kemur inn núna. Ef þú vilt hafa áhrif, taka ábyrgð og vera hluti af metnaðarfullri vegferð frá upphafi, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Starfssvið:
- Stýring og utanumhald fjölbreyttra verkefna á sviði endurskoðunar, reikningsskila og fyrirtækjaráðgjafar.
- Halda utan um verkáætlanir, tímaáætlanir og framvindu verkefna.
- Tryggja og hámarka gæði, skilvirkni og fagleg vinnubrögð í verkefnum.
- Hagnýt og virðisaukandi ráðgjöf til viðskiptavina.
- Greining fjárhagsgagna og hagnýting stafrænna lausna við úrvinnslu þeirra.
- Leiðsögn og þjálfun samstarfsfólks og stuðningur við faglegan vöxt þess.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði eða tengdum greinum; M.Acc. gráða og/eða löggilding til endurskoðunarstarfa er kostur en ekki skilyrði.
- Reynsla af endurskoðun, reikningsskilum eða ráðgjafarverkefnum.
- Hæfni til að leiða teymi og halda utan um mörg verkefni samtímis.
- Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
- Áhugi á stafrænum lausnum, sjálfvirkni ferla og hagnýtingu nýrrar tækni.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að byggja upp traust viðskiptatengsl.
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Áhugi á að starfa í kraftmiklu og ört vaxandi umhverfi.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Hvers vegna LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf:
- Þú færð tækifæri til að móta nýtt fyrirtæki með skýra sýn og stór markmið.
- Þú færð fullan stuðning við löggildingarferlið, kjósir þú þá leið.
- Rík tækifæri til starfsþróunar og markviss símenntun.
- Þú starfar í kraftmiklu umhverfi þar sem góðar hugmyndir fá að verða að veruleika.
- Þú vinnur með metnaðarfullu fólki sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og árangur.
- Þú nýtur sveigjanleika, trausts og ábyrgðar í starfi.
- Þú færð samkeppnishæf launakjör.
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt og metnaðarfullt fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila og ráðgjafar. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og virtustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sterkum grunni heiðarleika, fagmennsku og metnaðar.
Okkar markmið er að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Við tökum starf okkar alvarlega, góð ráðgjöf snýst um að skilja rekstur, greina tækifæri og ráðleggja viðskiptavinum um þeirra bestu ákvarðanir. Sú vinna skilar sér í skýrari yfirsýn, markvissari ákvarðanatöku og sterkari rekstri þeirra viðskiptavina sem við störfum með. Við veitum fyrirtækjum og stofnunum heildstæða og virðisaukandi þjónustu sem styður við upplýsta ákvarðanatöku, aukið gagnsæi og árangursríkan rekstur.
Framundan er spennandi uppbygging og vöxtur. Hjá LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf gefst starfsfólki einstakt tækifæri til að hafa áhrif, taka þátt í að móta starfsemina og vaxa með fyrirtæki sem stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði.
www.logosadvisory.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska










