LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf

Viltu vinna að kaupum, sölu og verðmati fyrirtækja?

LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt fyrirtæki með háleit markmið og skýra framtíðarsýn. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og traustustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sömu grunngildum um heiðarleika, fagmennsku og metnað.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með sterka greiningarhæfni, góðan skilning á rekstrarumhverfi fyrirtækja og metnað til að vaxa með og byggja upp öfluga fyrirtækjaráðgjöf til framtíðar. Þú færðu tækifæri til að taka þátt í fyrirtækjaviðskiptum frá upphafi til enda, vinna að verðmötum og fjárhagslegri greiningu og ráðleggja stjórnendum, eigendum og fjárfestum við mikilvægar ákvarðanir.

Framtíð fyrirtækisins verður mótuð af fólkinu sem kemur inn núna. Ef þú vilt hafa áhrif, taka ábyrgð og vera hluti af metnaðarfullri vegferð frá upphafi, þá hvetjum við þig til að sækja um.


Starfssvið:

  • Ráðgjöf í tengslum við kaup og sölu fyrirtækja (M&A).
  • Undirbúningur og framkvæmd áreiðanleikakannana (due diligence).
  • Gerð fyrirtækjaverðmata og fjárhagslíkana.
  • Greining á rekstri, markaði og samkeppnisstöðu fyrirtækja.
  • Undirbúningur kynninga og fjárfestingargagna.
  • Samskipti við fjárfesta, eigendur og stjórnendur.
  • Þátttaka í þróun ráðgjafarþjónustu félagsins.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði, fjármálaverkfræði eða tengdum greinum.
  • Reynsla af M&A, fyrirtækjaráðgjöf, verðmötum eða fjármálum.
  • Sterk greiningarfærni og gerð fjárhagslíkana.
  • Metnaður og áhugi á krefjandi verkefnum.
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi á stafrænum lausnum, sjálfvirkni ferla og hagnýtingu nýrrar tækni við úrlausn verkefna.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.


Hvers vegna LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf:

  • Þú færð tækifæri til að móta nýtt fyrirtæki með skýra sýn og stór markmið.
  • Rík tækifæri til starfsþróunar og markviss símenntun.
  • Þú starfar í kraftmiklu umhverfi þar sem góðar hugmyndir fá að verða að veruleika.
  • Þú vinnur með metnaðarfullu fólki sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og árangur.
  • Þú nýtur sveigjanleika, trausts og ábyrgðar í starfi.
  • Þú færð samkeppnishæf launakjör.



LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt og metnaðarfullt fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila og ráðgjafar. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og virtustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sterkum grunni heiðarleika, fagmennsku og metnaðar.

Okkar markmið er að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Við tökum starf okkar alvarlega, góð ráðgjöf snýst um að skilja rekstur, greina tækifæri og ráðleggja viðskiptavinum um þeirra bestu ákvarðanir. Sú vinna skilar sér í skýrari yfirsýn, markvissari ákvarðanatöku og sterkari rekstri þeirra viðskiptavina sem við störfum með. Við veitum fyrirtækjum og stofnunum heildstæða og virðisaukandi þjónustu sem styður við upplýsta ákvarðanatöku, aukið gagnsæi og árangursríkan rekstur.

Framundan er spennandi uppbygging og vöxtur. Hjá LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf gefst starfsfólki einstakt tækifæri til að hafa áhrif, taka þátt í að móta starfsemina og vaxa með fyrirtæki sem stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði.

www.logosadvisory.is


Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 5, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar