
Sérfræðingur
Viltu taka þátt í að byggja upp eitt öflugasta endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki landsins?
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt fyrirtæki með háleit markmið og skýra framtíðarsýn. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og traustustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sömu grunngildum um heiðarleika, fagmennsku og metnað.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa reynslu og/eða áhuga á endurskoðun, reikningsskilum og ráðgjöf. Hjá LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf færðu tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, njóta handleiðslu reyndra starfsmanna og þróast í starfi innan metnaðarfulls og vaxandi fyrirtækis.
Framtíð fyrirtækisins verður mótuð af fólkinu sem kemur inn núna. Ef þú vilt hafa áhrif, taka ábyrgð og vera hluti af metnaðarfullri vegferð frá upphafi, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Starfssvið:
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum á sviði endurskoðunar, reikningsskila og fyrirtækjaráðgjafar.
- Greining fjárhagsgagna og hagnýting stafrænna lausna við úrvinnslu þeirra.
- Gerð ársreikninga, árshlutauppgjöra og skattskila.
- Markviss þjálfun og regluleg endurgjöf undir handleiðslu reyndari samstarfsfólks.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði eða tengdum greinum; M.Acc. gráða og/eða löggilding til endurskoðunarstarfa er kostur en ekki skilyrði.
- Reynsla af bókhaldi, reikningsskilum, endurskoðun eða ráðgjafarverkefnum er kostur.
- Skipulögð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
- Áhugi á stafrænum lausnum, sjálfvirkni ferla og hagnýtingu nýrrar tækni.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Áhugi á að starfa í kraftmiklu og ört vaxandi umhverfi.
Hvers vegna LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf:
- Þú færð tækifæri til að móta nýtt fyrirtæki með skýra sýn og stór markmið.
- Þú færð fullan stuðning við löggildingarferlið, kjósir þú þá leið.
- Rík tækifæri til starfsþróunar og markviss símenntun.
- Þú starfar í kraftmiklu umhverfi þar sem góðar hugmyndir fá að verða að veruleika.
- Þú vinnur með metnaðarfullu fólki sem leggur áherslu á fagmennsku, samvinnu og árangur.
- Þú nýtur sveigjanleika, trausts og ábyrgðar í starfi.
- Þú færð samkeppnishæf launakjör.
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf er nýtt og metnaðarfullt fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila og ráðgjafar. Fyrirtækið starfar undir vörumerki LOGOS, einnar elstu og virtustu lögmannsstofu landsins, og byggir á sterkum grunni heiðarleika, fagmennsku og metnaðar.
Okkar markmið er að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Við tökum starf okkar alvarlega, góð ráðgjöf snýst um að skilja rekstur, greina tækifæri og ráðleggja viðskiptavinum um þeirra bestu ákvarðanir. Sú vinna skilar sér í skýrari yfirsýn, markvissari ákvarðanatöku og sterkari rekstri þeirra viðskiptavina sem við störfum með. Við veitum fyrirtækjum og stofnunum heildstæða og virðisaukandi þjónustu sem styður við upplýsta ákvarðanatöku, aukið gagnsæi og árangursríkan rekstur.
Framundan er spennandi uppbygging og vöxtur. Hjá LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf gefst starfsfólki einstakt tækifæri til að hafa áhrif, taka þátt í að móta starfsemina og vaxa með fyrirtæki sem stefnir að því að verða leiðandi á sínu sviði.
www.logosadvisory.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí nk.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska










